Karfan er tóm.
Sandra María Jessen er ekki á leið í frí þó það sé landsleikjahlé í Bestu deildinni. Fram undan eru lokaleikir landsliðsins í Þjóðadeild UEFA, síðustu leikir liðsins áður en kemur að lokamóti EM í sumar. Sandra María er á sínum stað í landsliðshópnum.
Sandra María hefur nú þegar leikið 51 landsleik og má teljast líklegt að hún komi við sögu í báðum leikjum liðsins sem fram undan eru. Ísland mætir Noregi á útvelli á föstudag og Frakklandi á heimavelli á þriðjudag í næstu viku.
Fyrir þessa lokaleiki er Ísland í 3. sæti riðilsins með þrjú stig. Noregur er sæti ofar með fjögur stig og Sviss í neðsta sætinu með tvö stig. Frakkar hafa þegar tryggt sér sigur í riðlinum og hefur komið fram í fréttum að þjálfari franska landsliðsins hafi ákveðið að hvíla nokkrar af sterkustu knattspyrnukonum landsins í leikjunum sem fram undan eru. Með góðum úrslitum í þessum tveimur leikjum á Ísland möguleika á að ná 2. sæti riðilsins þar sem stutt er á milli liðanna þriggja.
Leikurinn gegn Frökkum verður vígsluleikur á nýju grasi sem verið er að leggja lokahönd á á Laugardalsvellinum.
Hér má sjá landsliðshópinn í frétt á vef KSÍ. Amanda Jacobsen Andradóttir hefur dottið út úr hópnum vegna meiðsla og Arna Eiríksdóttir úr FH komið inn í hennar stað.