Karfan er tóm.
Sandra María Jessen er í leikmannahópi A-landsliðsins sem tilkynntur var í dag vegna tveggja síðustu leikja íslenska landsliðsins í A-deild Þjóðadeildarinnar, útileik gegn Noregi og heimaleik gegn Frakklandii, í lok maí og byrjun júní. Sandra María á að baki 51 A-landsleik.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari tilkynnti hópinn í hádeginu í dag og þarf ekki að koma á óvart að Sandra María er á meðal þeirra sem valdar eru í hópinn, eins og í undanförnum verkefnum.
Íslenska landsliðið mætir því norska á Lerkendal Stadion í Þrándheimi föstudaginn 30. maí kl. 18:00. Lokaleikur liðsins í riðlinum verður á Laugardalsvelli þriðjudaginn 3. júní kl. 18. Sjá má hópinn á vef KSÍ:
Þessa tvo leikdaga eru lokaumferðir í riðlinum spilaðar. Ísland er í 3. sæti riðilsins með þrjú stig. Leikurinn gegn Frakklandi verður að því er fram hefur komið vígsluleikur á nýlögðu blönduðu grasi/gervigrasi (hybrid) á Laugardalsvellinum.