Æfa á Tenerife næstu vikuna

Eftirvæntingin leyndi sér ekki þegar þessi mynd var tekin á sjöunda tímanum í morgun. Allar mættar m…
Eftirvæntingin leyndi sér ekki þegar þessi mynd var tekin á sjöunda tímanum í morgun. Allar mættar með góðum fyrirvara, tilbúnar í 5-6 tíma flug í sólina.


Um 30 manna hópur frá Þór/KA heldur utan til Tenerife í dag þar sem meistaraflokkur verður í æfingabúðum næstu vikuna.

Upphaflega var áætlæað að dvelja í æfingabúðum í Guildford í útjaðri London, en vegna óvissu í Englandsfluginu hjá Nice Air var ákveðið að breyta ferðinni og varð Tenerife fyrir valinu. Grundvallaratriði var að fljúga með Nice Air beint frá Akureyri og þar var Tenerife einn af þremur valkostum, ásamt Rotterdam og Kaupmannahöfn. Einn möguleiki var að fljúga til Hollands eða Danmerkur og þaðan áfram til London og halda okkur við upphaflegu æfingabúðirnar, en það reyndist of kostnaðarsamt. Tenerife var mest spennandi og með hjálp starfsfólks Ferðaskrifstofu Akureyrar tók ekki langan tíma að finna gott æfingasvæði og hótel í grendinni. Það þurfti ekki langa yfirlegu til að taka ákvörðun um að halda suður á bóginn.

Hópurinn var mættur á Akureyrarflugvöll um sexleytið í morgun, en brottför frá Akureyri var kl. 7:45. Liðið verður síðan við æfingar á völlum á Caleta-svæðinu á vesturströnd Tenerife. Mörg félög úr efstu deildum karla og kvenna í Evrópu hafa nýtt sér þessa aðstöðu, þar á meðal karlalið Liverpool árin 2016-2018.

Hópurinn samanstendur af 27 leikmönnum, tveimur þjálfurum, sjúkraþjálfara og aðstoðarmanni. Flogið er beint frá Akureyri eins og áður kom fram og verður hópurinn við æfingar í viku áður en aftur verður haldið heim miðvikudaginn 20. júlí, og þá aftur beint heim til Akureyrar.

Stelpurnar fóru út í margs konar fjáröflunarverkefni til að kosta ferðina og nutu ómetanlegs stuðnings frá ættingjum, vinum og stuðningsfólki félagsins, ásamt fjölmörgum fyrirtækjum sem gerðu okkur meðal annars kleift að halda glæsilegt happdrætti. Ferðin var skipulögð í samstarfi við Ferðaskrifstofu Akureyrar og flogið með Nice Air til Tenerife og heim.

Hópurinn vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem nefnd eru hér að ofan og lögðu sitt af mörkum til að gera þessa ferð að veruleika.