Karfan er tóm.
Agnes Birta Stefánsdóttir spilaði á dögunum sinn 100. leik með meistaraflokki Þórs/KA, samanlagt í KSÍ mótum (deildakeppni, bikarkeppni, deildabikar).
Agnes Birta hefur spilað næstum alla leiki liðsins frá 2023 ef frá eru taldir fáeinir leikir þar sem meiðsli hafa sett strik í reikninginn. Árin þar á undan stundaði hún nám og spilaði fótbolta í Bandaríkjunum og leikirnir því færri á því tímabili. Alls hefur hún spilað 122 leiki í meistaraflokki, þar af 22 samanlagt í láni hjá Hömrunum 2018 og Tindastóli 2020.
Fyrsta innkoma Agnesar Birtu í leik í meistaraflokki var á Laugardalsvellinum, hvorki meira né minna. Sumarið 2015 var verið að byggja nýja Valsvöllinn og spilaði Valur heimaleiki sína þá á þjóðarleikvanginum. Agnes Birta kom inn á sem varamaður undir lok leiks í 4-0 sigri Þórs/KA á Val haustið 2015, þegar hún var á 17. ári. Þetta var reyndar eina innkoma hennar í meistaraflokki það sumarið. Hún kom síðan við sögu í átta leikjum sumarið 2017 þegar liðið varð Íslandsmeistari, auk sex leikja í bikar og deildabikar.
Agnes stundaði nám og spilaði fótbolta í Bandaríkjunum á árunum 2018-2022. Leikirnir urðu því færri hér á landi á því tímabili. Hún lék 12 leiki með Hömrunum í næstefstu deild sumarið 2018, á lánssamningi frá Þór/KA. Sumarið 2020 var hún svo lánuð til Tindastóls sem þá lék í Lengjudeildinni og spilaði þar tíu leiki.
Undanfarin tvö tímabil og það sem af er árinu 2025 hefur Agnes Birta verið í byrjunarliðinu í flestöllum leikjum liðsins í deild, bikar og deildabikar.
Agnes hlaut Kollubikarinn sem veittur var á lokahófi félagsins haustið 2023, en sú viðurkenning hefur verið veitt árlega frá haustinu 2016 í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur, fyrrum leikmanns og stjórnarkonu. Við val á þeim leikmanni sem hlýtur Kollubikarinn eru hafðir til hliðsjónar eiginleikar sem prýddu Kollu sjálfa, áræðni, harka og dugnaður, svo einhverjir séu nefndir.
Agnes Birta með Kollubikarinn haustið 2023. Mynd: Skapti Hallgrímsson.