Annar leikur hjá U19 í dag

Ísfold Marý og Jakobína komu báðar inn á í seinni hálfleik gegn Póllandi. Ísland mætir Portúgal í dag kl. 17. (Fréttin var fyrir mistök birt í gær).

Okkar stelpur spiluðu báðar heilan leik gegn FH síðastliðinn sunnudag og voru því varamenn í leiknum gegn Póllandi á miðvikudaginn. Þegar þetta er skrifað vitum við ekki hvernig liðinu verður stillt upp í dag, en væntanlega ekki ólíklegt að þær komi þar báðar inn í byrjunarliðið.

Leikur Íslands og Portúgals hefst kl. 17 og hægt er að fylgjast með honum í gegnum  KSÍ TV - en útsending þar hefur reyndar verið að hökta nokkuð. Mögulegt er að horfa á leiki liðsins á vefsíðunni elevensports.com. Þar er hægt að stofna frían aðgang og horfa á leikina. Og hér er tengill beint á leikinn hjá okkar stelpum.

Mótið á vef KSÍ. 

Skjáskot úr útsendingu Elevensports.com. Ef smellt er á myndirnar er hægt að horfa á upptöku af fyrsta leiknum.


Jakobína kemur inn á sem varamaður á 65. mínútu.


Ísfold Marý að koma inn sem varamaður á 77. mínútu.