Arna Sif Ásgrímsdóttir - 300 meistaraflokksleikir fyrir Þór/KA

Arna Sif Ásgrímsdóttir í sigurleiknum gegn Þrótti í gær, sem var hennar 300. meistaraflokksleikur fy…
Arna Sif Ásgrímsdóttir í sigurleiknum gegn Þrótti í gær, sem var hennar 300. meistaraflokksleikur fyrir Þór/KA. Mynd: Ármann Hinrik.

Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði í gærkvöld 300. meistaraflokksleik sinn fyrir Þór/KA og eru þá taldir saman leikir í Íslandsmóti, bikarkeppni, deildabikar, meistarakeppni KSÍ og Evrópuleikir.

  • Áttunda í röðinni yfir leiki fyrir sama félag í efstu deild
    Stutt er síðan Arna Sif spilaði 200. leik sinn í efstu deild fyrir Þór/KA og komst þar með í fámennan hóp knattspyrnukvenna sem hafa náð 200 leikjum í efstu deild fyrir eitt og sama félagið, en þær eru samtals níu. Hún er nú komin í 206 leiki í efstu deild fyrir Þór/KA, mjakaði sér upp fyrir Hörpu Þorsteinsdóttur á listanum í gærkvöld og á stutt í að ná Rakel Logadóttur (207) og Auði Skúladóttur (209). Víðir Sigurðsson fór yfir þessa tölfræði í pistli fyrir akureyri.net í byrjun maí.
  • Þriðja í röðinni yfir flesta leiki í efstu deild á Íslandi
    Arna Sif er orðin þriðja leikjahæst í sögu efstu deildar kvenna, eins og fram kom í pistli Víðis Sigurðssonar fyrir akureyri.net í lok maí. Þá spilaði hún sinn 279. leik í efstu deild á íslandi, en aðeins Sandra Sigurðardóttir, sem lék með Þór/KA/KS á sínum tíma (337) og Málfríður Erna Sigurðardóttir (310) eiga að baki fleiri leiki í efstu deild her á landi.
  • Fjögur nöfn á efstu deild, fjögur á bikarkeppninni
    Frá því að Arna Sif steig sín fyrstu skref með Þór/KA í meistaraflokki hefur efsta deildin borið fjögur nöfn; Landsbankadeildin, Pepsi-deildin, Pepsi Max-deildin og Besta deildin. Bikarkeppnin hefur verið spiluð undir heitinu VISA-bikarinn, Valitor-bikarinn, Borgunarbikarinn og Mjólkurbikarinn. Deildarbikarkeppnin hefur borið nafnið Lengjubikarinn öll árin sem Arna Sif hefur spilað í meistaraflokki. 
  • Skoraði í fyrsta meistaraflokksleiknum
    Fyrsti leikur í meistaraflokki, Lengjubikarinn, B-deild 17. mars 2007.
    Þór/KA - FH 2-0
    Í byrjunarliði, skoraði annað mark liðsins á 90. mínútu
  • Tap í fyrsta leik í efstu deild
    Fyrsti leikur í efstu deild, Landsbankadeildin 21. maí 2007
    Keflavik - Þór/KA 7-0
    Í byrjunarliði.
  • Fyrirliði Íslandsmeistara og íþróttakona Akureyrar
    Arna Sif var fyrirliði Þórs/KA þegar liðið vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti 2012 og í framhaldinu var hún kjörin íþróttakona Akureyrar.
  • 7038 daga í meistaraflokki
    Frá því að Arna hóf að leika með meistaraflokki Þórs/KA eru liðnir 7.038 dagar, eða 19 ár, þrír mánuðir og sex dagar.
  • 411 meistaraflokksleikir á Íslandi, 435 samtals
    Auk leikjanna 300 fyrir Þór/KA á Arna Sif að baki 111 leiki í sömu mótum fyir Val. Þar við bætast 24 meistaraflokksleikir erlendis og samtalan því orðin 435 meistaraflokksleikir. Efstudeildarleikirnir eru 305 (Þór/KA 206, Valur 75, Verona 5, Göteborg/Kopparbergs 19).