Karfan er tóm.
Kollubikarinn var afhentur í ellefta skipti á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Gripurinn er veittur í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur, fyrrum leikmanns og stjórnarkonu í Þór/KA. Stjórn Þórs/KA ákveður hver hlýtur Kollubikarinn ásamt dæmtrum Kolbrúnar, þeim Ágústu og Örnu Kristinsdætrum.
Við val á þeim leikmanni sem hlýtur Kollubikarinn eru hafðir til hliðsjónar eiginleikar sem prýddu Kollu sjálfa, áræðni, harka og dugnaður, svo einhverjir séu nefndir. Kolbrún starfaði lengi í kvennaráði (stjórn) Þórs/KA, en hún lést þann 6. júní 2016.
Arna Sif Ásgrímsdóttir hlaut Kollubikarinn að þessu sinni og er það í annað skiptið sem hún verður þess heiðurs aðnjótandi. Hún hlaut bikarinn einnig 2018.

Arna Sif Ásgrímsdóttir hlaðin verðlaunum, þar á meðal Kollubikarnum. Mynd: Ármann Hinrik.
Það var eldri dóttir Kolbrúnar Jónsdóttur heitinnar, Ágústa Kristinsdóttir, sem mætti á lokahófið og afhenti Örnu Sif bikarinn. Ágústa lék um árabil með Þór/KA og kom aftur til starfa við þjálfun á miðju sumri þegar hún tók við stjórn U20 liðs félagsins.
Við afhendingu Kollubikarsins sagði Ágústa:
Mig langar fyrst að byrja á því að óska liðinu innilega til hamingju með að halda sætinu í deildinni. Þið létuð hjartað í mér slá aðeins hraðar en ég hefði kosið! Ég vona að allir hér inni viti hvað það þýðir að spila fyrir Þór/KA. Mér finnst stundum eins og fáir geri sér grein fyrir því hvað það gefur mikið, en líka hvað það krefst mikils af ykkur. Þið vinnið af ykkur rassinn bara til þess að fá að vera með og haldið úti starfi sem skiptir ótrúlega miklu máli fyrir kvennaboltann á Akureyri. Ég ætla ekkert að fara nánar út í þá vinnu – þið vitið sjálfar hvað liggur þar að baki.
En þá að öðru – og að mínu mati bestu verðlaunum kvöldsins. Til að útskýra Kollubikarinn aðeins fyrir þeim sem ekki vita að þá var Kolla móðir okkar Örnu (Kristinsdóttur). Hún starfaði fyrir félagið og gaf mikið af sér. Hún var já mjög ákveðin mjög, áræðin, hörkutól og dugnaðarforkur. Út frá þessari lýsingu þá skil ég Kollubikarinn þannig að hann fari til leikmanns sem er tilbúinn að gera allt fyrir liðið sitt. Leikmanns sem sýnir áræðni, hörku og dugnað. Þetta hefur ekkert endilega með það að gera hver skorar flest mörk eða er með mestu hæfileikana.
Öll góð lið þurfa svona leikmenn. Leikmenn sem alltaf mæta, berjast, taka ábyrgð og eru tilbúnir að gera aðeins meira fyrir liðið sitt. Sú sem fær Kollubikarinn í ár hefur alla þessa eiginleika. Hún er hörð, dugleg og ákveðin og gefur alltaf allt sem hún á fyrir liðið. Hún er algjör baráttujaxl, gefst ekki upp og er alltaf tilbúin að leggja aðeins meira á sig. Hún er frábær leiðtogi og fyrirmynd, bæði innan og utan vallar. Hún bakkar liðsfélaga sína upp, tekur ábyrgð þegar á reynir og setur liðið alltaf í fyrsta sæti. Það hefur kannski sjaldan sést jafn vel og á þessu tímabili. Þegar hlutirnir hafa ekki gengið eins og þið hefðu viljað hefur hún haldið áfram að berjast og draga vagninn.
Það er mikið hjarta í henni og það fer ekkert á milli mála hversu mikið Þór/KA þýðir fyrir hana. Hún sagði sjálf eftir síðasta leik að þið hefðuð farið inn í hann með það hugarfar að treysta á engan nema ykkur sjálfar. Mér finnst það eiginlega lýsa henni mjög vel. Þegar á reynir stígur hún upp, heldur áfram að berjast og gerir allt sem hún getur fyrir liðið sitt. Þetta er enginn nýgræðingur. Hún er í raun bara svaðaleg kempa með rúmlega 300 leiki fyrir Þór/KA að baki, 447 meistaraflokksleiki í heildina og já um 19 ár af reynslu í meistaraflokki. Arna Sif – innilega til hamingju.

Handhafar Kollubikarsins frá upphafi: