Árskortasalan hafin

Leikmenn í meistaraflokki, 2. og 3. flokki taka við pöntunum á árskortum.

Þór/KA spilar níu heimaleiki í Bestu deildinni í sumar auk leikja í úrslitaumferðum deildarinnar í haust, samtals 10-12 heimaleiki. Það verða semsagt fleiri heimaleikir í ár en undanfarin ár, en árskortið er í boði á sama verði og í fyrra.

Stakt kort: 15.000 krónur.
Tvö kort saman keypt af sama einstaklingi: 25.000 krónur.

Innifalið: Aðgangur á alla heimaleikina í Bestu deildinni, borgari og gos fyrir einn leik og spjall við þjálfara fyrir einn leik. Almennt miðaverð á staka leiki er 2.000 krónur fyrir fullorðna.