Örstutt í fyrsta leik okkar í Bestu deildinni þetta árið og knattspyrnukonurnar okkar eru komnar á fullt við að selja árskort á leikina okkar í sumar.
Árskortin gilda á heimaleiki liðsins í Bestu deildinni, en það fer eftir árangri liðsins hve margir heimaleikirnir verða þegar upp er staðið. Hins vegar er rukkað sérstaklega inn á bikarleiki, eins og ávallt.
Í boði verða tvenns konar miðaverð og árskort í sumar, nýjung þar sem við bjóðum ódýrara verð fyrir fólk á aldrinum 18-25 ára (2001-2008), en frítt er fyrir 17 ára og yngri. Aðalkortið gildir fyrir 26 ára og eldri.
- Aðalkort 26+
20.000 kr.
- U25 kort 18-25 ára (2001-2008)
10.000 kr.
- Yngri en 18 ára
Frítt
Verð á stökum miðum
- Aðalmiði 26+
2.500 kr.
- U25 miði - 18-25 ára (2001-2008)
1.500 kr.
Leikmenn meistaraflokks hafa árskortin til sölu, en einnig er hægt að kaupa kort beint í Stubbi. Miðasala á alla leiki í Stubbi og við innganginn.