Byrjunarliðið gegn Grindavík/Njarðvík.
Aftari röð frá vinistri: Karen Hulda Hrafnsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Amalía Árnadóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir.
Fremri röð frá vinstri: Karen María Sigurgeirsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Allie Augur, Margrét Árnadóttir og Erin Flurey.
Mynd: Ármann Hinrik
- - -
Sigur og þrjú stig í pokann í gær. Margrét Árnadóttir með eina mark leiksins á þriðju mínútu með laglegri afgreiðslu eftir aukaspyrnu frá Hildi Önnu Birgisdóttur.
Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0 (1-0)
Fróðleikur og tölfræði
- 60 - Emelía Ósk Krüger silaði 60. leik sinn fyrir Þór/KA. Þar af er 41 leikur í efstu deild.
- 90 - Bríet Jóhannsdóttir spilaði sinn 90. leik fyrir Þór/KA. Þar af eru 62 leikir í efstu deild
- 90 - Hulda Ósk Jónsdóttir hefur leikið 90 leiki í efstu deild samfleytt fyrir Þór/KA og eins og kom fram í pistli Víðis Sigurðssonar á Facebook sem Akureyri.net vitnaði í fyrr í sumar er Hulda Ósk sú knattspyrnukona sem nú spilar í deildinni sem hefur spilað flesta leiki samfleytt í efstu deild, og þeir eru orðnir 90.
- 93 - Samkvæmt talningu gæslufólks voru áhorfendur að leiknum í gær 93. Mikið væri gaman að fá fleiri á völlinn til að styðja stelpurnar okkar. Það er auðvelt að mæta á völlinn þegar vel gengur og lið eru í toppbaráttu og berjast um titla, en það er líka mikilvægt að sýna stuðning í verki þegar ekki gengur allt eftir væntingum. Við erum auðvitað öll þakklát þeim sem mæta hvort sem það eru 50 eða 500. Stuðningurinn er alltaf góður, sama hve mörg eru í stúkunni.
- 190 - Hulda Ósk Jónsdóttir hefur spilað 190 leiki fyrir Þór/KA í efstu deild.
Hópurinn
Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir (stoðsending 3'), Amalía Árnadóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir (Elísa Bríet Björnsdóttir 67'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Margrét Árnadóttir (mark 3'), Hulda Ósk Jónsdóttir (Emelía Ósk Krüger 67'), Erin Flurey (Bríet Jóhannsdóttir 81').
Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Ásta Ninna Reynisdóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir (67'), Emelía Ósk Krüger (81'), Bríet Jóhannsdóttir (81'), Agnes Birta Stefánsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir.
Áminningar: Hildur Anna Birgisdóttir (75'), Bríet Jóhannsdóttir (90').
Næstu fimm
- 14. júlí kl. 18
Stjarnan - Þór/KA
- 19. júlí kl. 16
Þór/KA - ÍBV
- 29. júlí kl. 18
Breiðablik - Þór/KA
- 7. ágúst kl. 18
Þór/KA - Fram
- 13. ágúst kl. 18
- Víkingur - Þór/KA
Myndir Ármanns Hinriks
Enn erum við svo lánsöm að ljósmyndarar nenna að mæta á leikina okkar til að fanga augnablikin og skrá söguna. Ármann Hinrik hefur mætt á næstum alla leiki okkar á síðustu árum og hann var mættur á leikinn gegn Grindavík/Njarðvík.
Hér að neðan má sjá afraksturinn, og mögulega meira á leiðinni.