Karfan er tóm.
Þór/KA tekur á móti Víkingi í 7. umferð Bestu deildarinnar í dag. Flautað verður til leiks kl. 14. Ókeypis aðgangur er á völlinn í boði Þórs/KA í dag.
Fyrir leikinn í dag er Þór/KA í 10. sæti deildarinnar með tvö stig eftir fyrstu sex leikina. Víkingur er í 8. sætinu með sex stig.
Að venju geta vallargestir keypt ýmsan varning tengdan Þór/KA í sjoppunni. Framleiddir hafa verið nýir treflar og flískragar með Þór/KA merkinu og slagorðinu Hærra saman. Auk þess er til takmarkað magn af treyjum - meistaraflokks- og yngri flokka - sem og húfur, bolir og innkaupapokar.
