Þór/KA 2026. Nöfn leikmanna eru neðst í fréttinni. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
- - -
Spennan í keppni fjögurra liða í neðri hluta Bestu deildarinnar er gríðarleg og fram undan tveir skemmtilegir föstudagar þegar lokaumferðirnar fara fram. Föstudaginn 25. september er að auki síðasti heimaleikur okkar liðs í sumar. Við viljum gera allt til að gleðja stuðningsfólk okkar og vonumst til að fá sem flest ykkar á leikinn. Bílaleiga Akureyrar og Grand þvottur ehf. bjóða öllum frítt á leikinn.
Það þarf líklega ekki að minna Akureyringa og annað stuðningsfólk okkar á mikilvægi þeirra leikja sem liðið á eftir í Bestu deildinni þetta sumarið. Baráttan um áframhaldandi sæti í deildinni er gríðarlega jöfn og spennandi enda fjögur góð lið að keppa og örugglega mjög langt síðan deildin var eins jöfn og spennandi og núna.
Leikurinn hefst kl. 18, en ýmislegt verður í boði í Hamri fyrir leik, sem og á vellinum í leikhléinu. Það er því full ástæða til að hvetja Akureyringa og annað stuðningsfólk til að fjölmenna á völlinn á föstudaginn, knattspyrna og kvöldmatur beint af grillinu, góður félagsskapur, skemmtileg stemning og svo auðvitað spennandi leikur.
Hver er staðan?
- Fram - 23 stig - markamunur -15
- Þór/KA - 22 stig - markamunur -3
- Víkingur - 21 stig - markamunur -11
- Valur - 20 stig - markamunur -10
- Besta deildin - neðri hluti
Hvaða leikir eru eftir
- 25.09.: Þór/KA - Fram
- 25.09.: Valur - Víkingur
- - -
- 02.10.: Víkingur - Þór/KA
- 02.10.: Fram - Valur
Hvað verður í boði?
- Frítt á leikinn í boði Bílaleigu Akureyrar og Grand þvottar ehf.
- Grillið heitt og hamborgarar klárir frá kl. 17:30
- Andlitsmálning í Hamri fyrir leik
- Ókeypis ís frá Kjörís á meðan birgðir endast
- Þrautabraut úti fyrir krakka - ef veður leyfir
- Tónlist við Hamar
- Happdrætti - 16 ára og yngri fá ókeypis miða, miðar til sölu fyrir eldri
- Sláarskotskeppni í leikhléi - verðlaun frá ELKO
- Þór/KA varningur til sölu
Treflar á 3.990 kr.
Hálskragar á 2.990 kr.
Húfur á 3.000 (örfá eintök eftir)
- Þór/KA útsalan - örfá eintök eftir af flestum vörunum
Keppnistreyjur barna, svartar á 5.000 kr. (XS og XXS)
Bómullarbolir með litlu Þór/KA merki á 2.000 kr. (S og M)
Bómullarbolir með litlu Þór/KA merki, stjörnum og ártölum 2.000 kr. (3XL, 4XL)
Innkaupapoki á 500 kr.
- Auðvitað bráðskemmtilegur og spennandi leikur í æsilegri keppni í neðri hluta Bestu deildarinnar, frábær stemning í stúkunni og fullt af Akureyringum og öðru stuðningsfólki sem hvetur stelpurnar okkar af krafti og jákvæðni
Hver gerir daginn betri?
Hver gerir árið betra?
Þór/KA á í góðu samstarfi við fjölda fyrirtækja sem sum eru sýnileg á fatnaði leikmanna og þjálfara, en önnur styðja félagið með ýmsum hætti. Fyrir allt þetta samstarf og stuðning við félagið erum við þakklát. Við hvetjum okkar fólk til að eiga viðskipti við þau fyrirtæki sem standa við bakið á okkur.
Auk öflugra samstarfsaðila eru það að sjálfsögðu sjálfboðaliðarnir í kringum félagið sem gera þetta allt saman mögulegt. Hér verður ekki talinn upp nafnalisti, þið vitið hver þið eruð. Bestu þakkir til allra sem komið hafa að starfinu á tímabilinu.



Þór/KA 2026
Aftasta röð frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson markvarðaþjálfari, Sveinn Leó Bogason aðstoðarþjálfari, Angela Mary Helgadóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir (Völsungur), Hildur Anna Birgisdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Sigurbjörn Bjarnason styrktarþjálfari.
Miðröð frá vinstri: Haraldur Ingólfsson liðsstjóri, Iðunn Elfa Bolladóttir sjúkraþjálfari, Emelía Ósk Krüger, Kolfinna Eik Elínardóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Erin Flurey, Amalía Árnadóttir, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari, Jóhann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari.
Fremsta röð frá vinstri: Karen María Sigurgeirsdóttir, María Dögg Jóhannsdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Allie Augur, Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Libby Moore.
Á myndina vantar eftirtaldar: Bríet Kolbrún Hinriksdóttir (á láni hjá Dalvík/Reyni), Ísey Ragnarsdóttir (á láni hjá Völsungi), Bríet Fjóla Bjarnadóttir (fór til Þróttar í sumarglugganum), Lauren Lapomarda (kom til félagsins eftir myndatöku).
Mynd: Skapti Hallgrímsson.