Þór/KA vann sinn fyrsta útisigur í Bestu deildinni í sumar og sótti þar með langþráð þrjú stig í greipar Víkinga í gær. Hildur Anna Birgisdóttir, Erin Flurey og Hulda Ósk Jónsdóttir skoruðu mörkin. Sigurinn skilar liðinu upp í 6. sæti deildarinnar.
Þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af leiknum fékk Arna Sif Ásgrímsdóttir boltann á miðjum vellinum eftir sendingu frá Víkingum, kom honum á Maríu Dögg Jóhannesdóttur, hún sendi á Libby Moore sem sendi fram kantinn á Huldu Ósk Jónsdóttur. Hulda Ósk renndi boltanum með jörðinni utarlega í teignum þar sem Hildur Anna Birgisdóttir var mætt rétt utan vítapunkts og skoraði.
Erin Flurey bætti við öðru marki þegar tæðar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Eftir nokkra baráttu um boltann inni á vallarhelmingi Þórs/KA kom Libby Moore boltanum út á kantinn á Hildi Önnu Birgisdóttur sem átti frábæra stungusendingu inn fyrir vörn Víkings. Þar kom Erin á sprettinum, var á undan varnarmönnum í boltann, lék inn í teig og skoraði af öryggi.
Þór/KA með tveggja marka forystu eftir fyrri hálfleikinn, en þriðja markið kom þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka. Hildur Anna tók þá horn, Karen Hulda Hrafnsdóttir og einn leikmanna Víkings börðust um boltann í loftinu og af þeim féll hann fyrir Huldu Ósk sem afgreiddi hann í netið með snyrtilegri hælspyrnu.
Víkingur - Þór/KA 0-3 (0-2)
- 0-1 - Hildur Anna Birgisdóttir (9'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
- 0-2 - Erin Flurey (40'). Stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir.
- - -
- 0-3 - Hulda Ósk Jónsdóttir (70'). Stoðsending: Karen Hulda Hrafnsdóttir.
- Leikskýrslan á vef KSÍ
- Besta deildin
Tölur og fróðleikur
- 5 - Leikurinn í gær var sá fimmti þar sem liðið heldur markinu hreinu, en þeir fimm leikir eru allir síðustu tvo mánuðina, eða frá og með markalausa jafnteflinu við Val á útivelli 13. júní. Liðið hefur sem sagt haldið markinu hreinu í fimm af síðustu átta leikjum.
- 16 - Af þeim 18 stigum sem liðið hefur unnið sér inn í deildinni í sumar hafa 16 stig komið á þessu sama tímabili, þ.e. í átta leikjum frá 13. júní.
- 13 - Af 27 leikmönnum sem hafa verið á leikskýrslu hjá Þór/KA í Bestu deildinni í sumar hafa 12 skorað mark eða mörk, auk þess sem ein skoraði í Mjólkurbikarnum. Sextán leikir í deild og bikar, 27 leikmenn á skýrslu, 24 sem hafa spilað, 13 sem hafa skorað fyrir liðið. Erin Flurey hefur skorað sex mörk og Margrét Árnadóttir fjögur. Aðrar sem hafa skorað í deild eða bikar: Amalía Árnadóttir (2), Bríet Jóhannsdóttir (2), Hulda Ósk Jónsdóttir (2), Arma Sif Ásgrímsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir, Birgitta Rún Finnbogadottir (í bikar), Emelía Ósk Krüger, Hildur Anna Birgisdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir og María Dögg Jóhannesdóttir eitt hver. Hildur Anna bættist í þennan hóp í leiknum í gær.
- 100 - Amalía Árnadóttir spilaði í gær sinn 100. meistaraflokksleik fyrir Þór/KA, samanlagt í deild, bikar og deildabikar. Þessi tímamótaleikur hitti óvænt og af tilviljun á tvítugsafmæisdag Amalíu, 14. ágúst, því upphaflega var leikurinn settur á 13. ágúst en seinkað um einn dag vegna heimaleiks karlaliðs Víkings í Evrópukeppni. Amalía á reyndar að baki 121 leik í meistaraflokki, þar af tiu með Völsungi og 11 með Hömrunum.
- 150 - Karen María Sigurgeirsdóttir spilaði í gær sinn 150. leik í efstu deild. Þar af eru 133 með Þór/KA og 17 með Breiðabliki.
- 240 - Karen María spilaði jafnframt 240. meistaraflokksleikinn sinn, samanlagt í deild, bikar, deildabikar, meistarakeppni og Evrópukeppnum. Þar af eru 187 fyrir Þór/KA.
- 280 - Hulda Ósk Jónsdóttir spilaði sinn 280. leik í meistaraflokki með Þór/KA í gær. Hún á einnig að baki leiki með Völsungi og KR, samanlagt 317 leiki.
Hópurinn
- Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir, Libby Moore, María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir (Emelía Blöndal 87'), Amalía Árnadóttir (Karen María 71'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Margrét Árnadóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir (Birgitta Rún 80'), Erin Flurey (Agnes Birta 80').
- Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Birgitta Rún Finnbogadóttir (80'), Karen María Sigurgeirsdóttir (71'), Eva Dolina-Sokolowska, Agnes Birta Stefánsdóttir (80'), Halla Bríet Kristjánsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Emma Júlía Cariglia, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (87').

Byrjunarliðið gegn Víkingi: Aftari röð frá vinstri: Arna Sif Ásgrímsdóttir fyrirliði, Hildur Anna Birgisdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Amalía Árnadóttir, Angela Mary Helgadóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Libby Moore, Allie Augur, Erin Flurey, Hulda Ósk Jónsdóttir og Margrét Árnadóttir.
Úrslit 16. umferðar
- Þróttur - Valur 3-2
- Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0
- Fram - FH 4-6
- ÍBV - Stjarnan 3-2
- Víkingur - Þór/KA 0-3
Leikir 17. umferðar
- 20.08.: Grindavík/Njarðvík - Fram
- 20.08.: FH - Víkingur
- 20.08.: Stjarnan - Breiðablik
- 21.08.: ÍBV - Þróttur
- 21.08.: Þór/KA - Valur
Næstu þrír
Hér eru aðeins næstu þrír leikir því nú eru aðeins fjórar umferðir eftir af deildarkeppninni fyrir tvískiptingu í efri sex og neðri fjögur lið. Leikjadagskráin eftir 6. september ræðst því ekki fyrr en staðan að loknum 18 umferðum er ljós.
- 21. ágúst kl. 18
Þór/KA - Valur
- 29. ágúst kl. 14
Þróttur - Þór/KA
- 6. september kl. 14
FH - Þór/KA
Leikur í 10. umferð mótsins