Besta deildin: Heimsókn að Hlíðarenda í dag

Úr leik liðanna í 17. umferð mótsins. Mynd: Ármann Hinrik.
Úr leik liðanna í 17. umferð mótsins. Mynd: Ármann Hinrik.

Þór/KA sækir Val heim í 19. umferð Bestu deildarinnar í dag, sem jafnframt er fyrsta umferðin í neðri hluta deildarinnar. 

Það skal ítrekað hér enn og aftur að stuðningur við liðið okkar, bæði á heima- og útivelli, getur hreinlega skipt sköpum um niðurstöðuna. Því viljum við hvetja sem flesta Akureyringa og annað stuðningsfólk á suðvesturhorninu til að bregða undir sig betri fætinum og kíkja á Hlíðarenda í dag, styðja stelpurnar okkar af miklum ákafa og gefa þeim þann aukakraft sem ef til vill mun ráða úrslitum í dag. Flautað verður til leiks kl. 16 og við hlökkum til að heyra í ykkur og sjá í stúkunni.

Staðan áður en keppni í neðri hlutanum hófst var þannig að Fram hafði 22 stig, Valur og Víkingur 20 stig og Þór/KA 19 stig. Fyrri leikur umferðarinnar fór fram í gærkvöld þar sem Fram og Víkingur gerðu 2-2 jafntefli. Fram er því komið með 23 stig og Víkingur 21.

19. umferð

  • Fram - Víkingur 2-2
  • Valur - Þór/KA

20. umferð

  • 25.09.: Þór/KA - Fram
  • 25.09.: Valur - Víkingur

21. umferð

  • 02.10.: Fram - Valur
  • 02.10.: Víkingur - Þór/KA

Rétt er að vekja athygli á því að leikurinn 25. september er síðasti heimaleikurinn okkar á þessu tímabili og verður frítt á leikinn í boði Grand þvottar ehf. og Bílaleigu Akureyrar. Í tilefni dagsins verður líka bryddað upp á ýmsu skemmtilegu sem auglýst verður í byrjun næstu og þegar nær dregur leiknum.