Besta deildin: Já, Besta deildin 2027

Byrjunarliðið. Aftari röð frá vinstri: Hulda Ósk Jónsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Libby Moore,…
Byrjunarliðið. Aftari röð frá vinstri: Hulda Ósk Jónsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Libby Moore, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir. Fremri röð frá vinstri. Hildur Anna Birgisdóttir, Margrét Árnadóttir, Allie Augur, Erin Flurey og Lauren Lapomarda.

Sigur í síðasta leik tímabilsins á útivelli gegn Víkingi í gærkvöld tryggði Þór/KA áframhaldandi veru í Bestu deildinni. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði María Dögg Jóhannesdóttir á 75. mínútu og Erin Flurey bætti við örðu marki níu mínútum síðar.

Æsispennandi lokakafla neðri hluta Bestu deildarinnar lauk í gær og niðurstaðan: Þór/KA verður áfram í Bestu deildinni 2027, 22. tímabilið í röð og samanlagt undir merkjum Þórs/KA (nokkur ár sem Þór/KA/KS) eru tímabilin í efstu deild nú orðin 26 og næsta tímabil því það 27. sem liðið leikur í efstu deild á undanförnum 29 árum.

Fyrra markið: Hildur Anna Birgisdóttir tók hornspyrnu frá hægri, Víkingar hreinsa út á kant, Libby Moore sendir á Hildi Önnu sem kemur boltanum strax fyrir markið. Þar er smá atgangur sem endar á því að Hulda Ósk Jónsdóttir potar í boltann og María Dögg Jóhannesdóttir var vel vakandi, vildi vera hetjan í teignum, náði skoti og kom boltanum í markið.

Níu mínútum eftir fyrra markið er Víkingsliðið með boltann inni á vallarhelmingi Þórs/KA, Margrét Árnadóttir vinnur boltann, hefur nóg pláss og spilar áfram yfir miðjuna, sendir síðan frábæra sendingu inn fyrir vörnina á Erin Flurey sem kemur sér inn í teig og skorar með nákvæmu skoti í fjærhornið.

Halla Bríet Kristjánsdóttir spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Þór/KA í Bestu deildinni.

Víkingur - Þór/KA 0-2 (0-0)

  • 0-1 - María Dögg Jóhannesdóttir (75'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
  • 0-2 - Erin Flurey (84'). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
  • Leikskýrslan
  • Besta deildin - neðri hluti: Lokastaðan

Góð mæting og frábær stemning í stúkunni. Fyrir það ber að þakka. 

Með leiknum á Víkingsvellinum lauk tímabilinu hjá meistaraflokki. Ástæða er til að hrósa þeim sem mættu á völlinn og studdu sitt lið. Frábær mæting og frábær stemning. Óskandi að svona væri þetta í fleiri leikjum í deildinni.

Að loknu tímabili er líka ástæða til að þakka fyrir allt það sem gerir stelpunum okkar mögulegt að standa í þessu. Bestu þakkir til sjálfboðaliða, hvort tveggja í áberandi og ósýnilegum störfum, í fjáröflunarverkefnum og rekstrartengdum verkefnum, við undirbúning og umgjörð leikja, við akstur liðsins í útileiki og svo framvegis. Störfin verða ekki talin öll upp hér heldur er öllum sem gerðu okkur þetta kleift færðar bestu þakkir.