Besta deildin: Markaveisla og þrjú stig heim að austan

Þór/KA og FHL buðu upp á markaveislu þegar liðin mættust í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði í 5. umferð Bestu deildarinnar í gær. Þór/KA vann leikinn, 5-2. Sandra María Jessen opnaði markareikninginn sinn í Bestu deildinni þetta árið og skoraði þrennu. Sonja Björg Sigurðardóttir skoraði fyrsta mark sitt í efstu deild. Þór/KA er með níu stig eftir fimm umferðir.

Leikurinn var opinn og fjölmörg færi sem litu dagsins ljós. Þór/KA var þó sterkara liðið og skapaði sér mörg færi, bæði áður en fyrsta markið kom og svo áfram allan leikinn. Gestgjafarnir fengu einnig sín færi, flest eftir hraðar sóknir, en vantaði að klára sóknirnar með góðum skotum, en þegar það tókst var Jessica vel á verði í markinu hjá Þór/KA.

  • Sandra María Jessen skoraði fyrsta markið eftir að Hulda Björg Hannesdóttir hafði sent langan bolta frá eigin vallarhelmingi inn á vítateig þar sem Margrét Árnadóttir og Sandra María áttu í baráttu við varnarmenn FHL sem endaði með skoti frá Söndru Maríu.
  • Annað markið skoraði Sonja Björg Sigurðardóttir og það var orðið að veruleika 87 sekúndum eftir það fyrsta og 41 sekúndu eftir að FHL byrjaði á miðju eftir fyrsta markið. Bríet Jóhannsdóttir fór þá upp vinstri kantinn, komst af harðfylgi framhjá tveimur varnarmönnum og sendi boltann inn á markteiginn þar sem Sonja Björg var mætt og kom boltanum í netið.
  • Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði þriðja markið með fallegu skoti af vítateigslínu eftir undirbúning Henríettu Ágústsdóttur. Boltinn fór í þverslána og niður og úrskurðuðu dómarar að hann hafi komið niður innan við marklínuna.
  • Sandra María skoraði fjórða markið. Eftir að Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir vann návígi á eigin vallarhelmingi sendi hún boltann út til vinstri á Margréti Árnadóttur sem kom honum áfram upp vinstri kantinn á Söndru Maríu. Hún lék inn í teiginn, fór framhjá varnarmanni og átti fast skot niðri út við nærstöng.
  • Sandra skoraði einnig fimmta mark Þórs/KA, að þessu sinni eftir undirbúning Amalíu Árnadóttur og Huldu Óskar Jónsdóttur á hægri kantinum sem endaði með því að Hulda Ósk sendi inn að markteig þar sem Sandra María skaut viðstöðulaust.

Upptökur frá leiknum sýna ýmislegt áhugavert, til dæmis atlögu að varnarmanni Þórs/KA inni í teig hjá Þór/KA rétt áður en fyrra mark FHL var skorað í viðbótartíma fyrri hálfleiks og svo það hvernig vítaspyrnudóminn ber að, hvort þar er yfirleitt um snertingu að ræða og þá um leið hvort meint „brot“ átti sér stað inni í vítateig. Eflaust má skoða fleiri atvik í markaþætti Bestu deildarinnar ef áhugi, mannafli og tími er til að fara grannt í gegnum leikinn. Var boltinn örugglega inni í þriðja marki Þórs/KA? Eflaust vilja gestgjafarnir fá svar við því líka.

FHL - Þór/KA 2-5 (1-3)

  • 0-1 - Sandra María Jessen (15'). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
  • 0-2 - Sonja Björg Sigurðardóttir (16'). Stoðsending: Bríet Jóhannsdóttir.
  • 0-3 - Karen María Sigurgeirsdóttir (37'). Stoðsending: Henríetta Ágústsdóttir.
  • 1-3 - Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir (45+2')
    - - -
  • 1-4 - Sandra María Jessen (61'). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
  • 2-4 - Aida Kardovic (78') (v)
  • 2-5 - Sandra María Jessen (84'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
  • Leikskýrslan
  • Besta deildin

Fróðleikur og tölur

  • 1 - Sonja Björg Sigurðardóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild.
  • - Þrenna Söndru Maríu Jessen í leiknum var hennar sjötta þrenna í efstu deild, auk þess sem hún skoraði fjögur mörk leik gegn FH í fyrravor (í fernunni er líka falin þrenna). Þrennur Söndru Maríu:
    • 4. september 2012 í 9-0 heimasigri gegn Selfyssingum
    • 18. maí 2016 í 4-0 heimasigri gegn ÍA
    • 16. júní 2017 í 5-0 heimasigri gegn Grindavík
    • 5. maí 2018 í 5-0 útisigri gegn Grindavík
    • 7. júlí 2024 í 4-2 útisigri gegn Þrótti
    • 8. maí 2025 í 5-2 útisigri gegn FHL
  • 41 - Frá því að leikmenn FHL byrjuðu á miðju eftir fyrsta mark leiksins leið 41 sekúnda þar til boltinn söng aftur í netinu hjá þeim eftir undirbúning Bríetar og afgreiðslu Sonju Bjargar.
  • 87 - Frá því að boltinn söng í netinu eftir skot Söndru Maríu í fyrsta markinu liðu 87 sekúndur þar til Sonja Björg hafði bætt við öðru marki, það er tíminn sem fór í að fagna markinu ásamt tímanum sem leið frá því að byrjað var á miðju þar til annað markið var skorað.
  • 114 - Með þrennunni í leiknum í gær hefur Sandra María skorað 114 mörk í efstu deild, í 181 leik. 
  • 120 - Agnes Birta Stefánsdóttir spilaði sinn 120. leik í meistaraflokki. Þar af eru 98 með Þór/KA, en hún á einnig að baki leiki með Hömrunum og Tindastóli.
  • 180 - Hulda Ósk Jónsdóttir spilaði sinn 180. leik í efstu deild. Þar af eru 
  • 220 - Hulda Björg Hannesdóttir spilaði sinn 220. leik fyrir Þór/KA, samanlagt í KSÍ mótum og Evrópukeppni.