Besta deildin: Naumt tap í Hafnarfirði

Við upphaf fyrri leiks liðanna í deildinni sem fram fór á Akureyri 25. apríl. Mynd: Ármann Hinrik.
Við upphaf fyrri leiks liðanna í deildinni sem fram fór á Akureyri 25. apríl. Mynd: Ármann Hinrik.

Eins marks tap gegn FH varð niðurstaðan síðastliðinn sunnudag í síðasta leik okkar fyrir skiptingu deildarinnar. Sigur var nauðsynlegur til að eiga möguleika á að fara upp í efri hlutann.

Erin Flurey náði forystunni fyrir Þór/KA á 23. mínútu. Upp úr innkasti hægra megin kom sending upp kantinn á Amalíu Árnadóttur sem átti frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Erin var mætt, reyndar alveg ein og óvölduð af varnarmönnum FH, og skallaði boltann af miklu öryggi framhjá markverði FH. Liðið fékk svo tækifæri til að auka forystuna, en því miður nýttust þau ekki. Þess í stað kom mark í andlitið, óheppni í meira lagi því skot frá Hafrúnu Birnu Helgadóttur fór í varnarmann og breytti um stefnu þannig að Allie Augur í markinu átti ekki möguleika á að verja. Ingibjörg Magnúsdóttir bætti við öðru marki FH í seinni hálfleiknum og þannig urðu lyktir leiksins, 2-1 sigur FH.

FH - Þór/KA 2-1 (1-1)

Tölur og fróðleikur

  • - Lauren Lapomarda var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu, en þetta var hennar þriðji leikur fyrir félagið.
  • 90 - Birgitta Rún Finnbogadóttir  spilaði sinn 90. leik í meistaraflokki. Þar af er 21 leikur með Þór/KA, 17 í Bestu deildinni, einn í Mjólkurbikarnum og þrír í Lengjubikar. Hinir 69 leikirnir eru að sjálfsögðu fyrir Tindastól. 
  • 130 - Agnes Birta Stefánsdóttir spilaði sinn 130. leik fyrir Þór/KA. Þar af er 91 leikur í Bestu deildinni. Samanlagt á Agnes Birta að baki 152 leiki í meistaraflokki fyrir Þór/KA, Hamrana og Tindastól. 
  • 190 - Karen María Sigurgeirsdóttir spilaði sinn 190. leik fyrir Þór/KA. Þar af eru 136 leikir í Bestu deildinni. Samanlagt er hún komin með 242 meistaraflokksleiki fyrir Þór/KA, Hamrana og Breiðablik.
  • 220  Margrét Árnadóttir spilaði sinn 230. meistaraflokksleik í gær. Þar af eru 225 fyrir Þór/KA, en hinir fimm fyrir Parma í ítölsku deildinni. 
  • 320 - Hulda Ósk Jónsdóttir er komin með samanlagt 320 leiki í meistaraflokki. Þar af eru 283 fyrir Þór/KA, 20 fyrir KR og 17 fyrir völsung. 

Hópurinn

  • Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir (Karen María 77'), Libby Moore, María Dögg Jóhannesdóttir (Agnes Birta 89'), Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir (Birgitta Rún 77'), Amalía Árnadóttir (Hulda Ósk 64'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Margrét Árnadóttir, Erin Flurey, Lauren Lapomarda (Halla Bríet 89').
  • Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Birgitta Rún Finnbogadóttir (77'), Karen María Sigurgeirsdóttir (77'), Agnes Birta Stefánsdóttir (89'), Halla Bríet Kristjánsdóttir (89'), Hulda Ósk Jónsdóttir (64') Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir.

Úrslit 10. umferðar

Eins furðulega og það hljómar fóru leikir þessarar 10. umferðar, sem varð þegar upp var staðið lokaumferð fyrir tvískiptingu deildarinnar, ekki allir fram á sama tíma.

Liðin sem börðust um sæti í efri hlutanum spiluðu á mismunandi tímum og dögum. Þór/KA spilaði á sunnudegi kl. 14, Grindavík/Njarðvík spilaði sinn leik kl. 16:30 sama dag, en Þróttur kvöldið eftir. Þetta þýddi einfaldlega að þegar Grindavík/Njarðvík mætti Val og Þróttur mætti Breiðabliki vissu þjálfarar fyrrnefndu liðanna að þeirra lið var öruggt með sæti í efri hlutanum á lokakafla mótsins. 

  • 05.09.: ÍBV - Fram 2-3
  • 06.09.: FH - Þór/KA 2-1 
  • 06.09.: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 
  • 07.09.: Stjarnan - Víkingur 1-2
  • 07.09.: Þróttur - Breiðablik 1-1

Leikir í neðri hlutanum

Strax að loknum leik okkar gegn FH var orðið ljóst hvaða lið myndu lenda fyrir ofan strik og neðan við tvískiptinguna þó svo tveimur leikjum umferðarinnar hafi verið ólokið. Fram, Valur, Þór/KA og Víkingur mætast í einfaldri umferð í neðri hlutanum, en FH, Breiðablik, ÍBV, Stjarnan, Þróttur og Grindavík/Njarðvík í efri hlutanum. Það er því ljóst að Þór/KA á eftir þrjá leiki, þar af aðeins einn heimaleik.

18.09.: Fram - Víkingur
19.09.: Valur - Þór/KA
- - -
25.09.: Valur - Víkingur
25.09.: Þór/KA - Fram
- - -
02.10.: Fram - Valur
02.10.: Víkingur - Þór/KA