Karfan er tóm.
Þór/KA vann sanngjarnan og síst of stóran sigur gegn Víkingi í 10. umferð Bestu deildarinnar síðastliðinn laugardag. Eftir rýra uppskeru úr næstu þremur leikjum á undan var greinilegt að stelpurnar ætluðu alls ekki í EM fríið með tap á bakinu. Þór/KA hafði mikla yfirburði í leiknum og hefði hæglega getað skorað fleiri mörk.
Fyrir leikinn gegn Víkingi fékk Agnes Birta Stefánsdóttir afhenta treyju í tilefni af því að hún hafði nýlega leikið sinn 100. leik fyrir Þór/KA. Agnes Birta lét frægðina ekki trufla sig og náði forystu fyrir Þór/KA með marki eftir hornspyrnu. Hún hafði þá sjálf skallað boltann í leikmann Víkinga og var svo fyrst að átta sig og skaut honum upp í þaknetið af stuttu færi. Víkingar jöfnuðu skömmu fyrir leikhlé og það nokkuð gegn gangi leiksins. Ýmislegt kom svo í veg fyrir að Þór/KA næði að skora fleiri mörk í fyrri hálfleiknum.
Jöfnunarmark Víkinga náði ekki að slá okkar stelpur út af laginu - eða kveikti í þeim - því það liðu ekki nema 30 sekúndur þar til Amalía Árnadóttir hafði skallað boltann í netið, og það eftir að Sandra María hafði átt skot í slá. Hulda Ósk sendi þá boltann fyrir, Sandra María tók hann á lofti, boltinn í þverslá, upp í loftið og niður aftur þar sem Amalía var mætt og skallaði í markið.
Fyrir leik. Mynd: Ármann Hinrik.
Þriðja markið kom svo eftir skemmtilegan samleik þeirra Sonju Bjargar og Söndru Maríu. Sonja fékk þá boltann upp við vítateig Víkings, ýtti honum til hliðar þar sem Sandra María kom inn í teiginn vinstra megin. Markvörður Víkinga varði skot Söndru Maríu, en þar var Sonja Björg tilbúin inni á teignum og hirti frákastið.
Sandra María skoraði svo sjálf fjórða markið eftir að Kimberley Dóra kom með háa fyrirgjöf frá hærgi. Sandra María var tilbúin á fjærstönginni þegar boltinn sveif yfir markvörð Víkinga og skallaði í markið af stuttu færi.
Það fór vel á því að Sandra María skyldi kveðja stuðningsmenn með marki áður en hún hélt til móts við landsliðið sem er á leið í æfingaleik í Serbíu og svo á EM í Sviss. Fréttaritari Þórs/KA telur stoðsendingar ef til vill með öðrum hætti en sérfræðingar, en í þessum leik fær Sandra María skráðar tvær stoðsendingar og eitt mark - stoðsendingarnar að vísu báðar eftir skot (í slá og markvörð) og liðsfélagar hennar sem eru fyrstar á vettvang og klára dæmið.
Þór/KA - Víkingur 4-1 (1-1)
Þar með er Besta deildin farin í EM frí og næsti leikur liðsins er ekki fyrr en 24. júlí. Sigur var því gott veganesti inn í fríið og Þór/KA í 4. sæti deildarinnar með 18 stig. Þar fyrir ofan eru FH með 22 stig og svo Þróttur og Breiðablik með 25.
Vegna anna og tímaskorts fréttaritara hefur ekkert verið skrifað hér á vefinn um tvo síðustu leiki okkar á undan leiknum við Víking, bikarleik gegn FH og deildarleik gegn Breiðabliki. Skortur á skrifum skýrist ekki af því að þetta voru tapleikir.
Þann 12. júní mætti Þór/KA liði FH í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í Boganum. Gestirnir fóru með 3-1 sigur af hólmi og fara áfram í undanúrslit, en við höfum lokið keppni í bikarnum þetta árið.
Þór/KA - FH 1-3 (1-1)
Örfáum dögum eftir bikarleikinn var svo komið að heimaleik gegn Breiðabliki í Bestu deildinni. Aftur voru það gestirnir sem fóru með sigur af hólmi, Breiðablik hirti stigin þrjú með 2-0 sigri. Breiðablik skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleik, en þrátt fyrir góðar tilraunir og fín færi tókst okkur ekki að minnka muninn. Seinni hálfleikurinn markalaus.
Þór/KA - Breiðablik 0-2 (0-2)
Hér kemur svo hefðbundinn talnafróðleikur eftir leikina þrjá sem fjallað er um hér að ofan.
Birgir Örn Reynisson, varaformaður stjórnar Þórs/KA, afhenti Agnesi Birtu treyju að gjöf fyrir leikinn gegn Víkingi í tilefni af því að hún hafði nýlega spilað sinn 100. leik fyrir Þór/KA. Mynd: Ármann Hinrik.