Sandra María Jessen skallar að marki Stjörnunnar í gær. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -
Þór/KA vann Stjörnuna í 7. umferð Bestu deildarinnar þegar liðin mættust í Boganum í gær. Sandra María Jessen skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu. Þór/KA er með 15 stig, en þrjú lið eru fyrir ofan með 16 stig.
Leikurinn var fjörugur baráttuleikur þó svo aðeins hafi eitt mark litið dagsins ljós. Þór/KA byrjaði af krafti og hafði yfirhöndina í fyrri hálfleiknum. Nokkur góð færi urðu til, en aðeins eitt sem nýttist. Margrét Árnadóttir kom þá boltanum til vinstri inn í teiginn á Söndru Maríu Jessen. Sandra María lagði boltann fyrir sig og á hægri fótinn, átti fast og hnitmiðað skot niðri í markhornið fjær án þess að markvörður Stjörnunnar eða varnarmenn næðu að hefta för boltans.
Stjarnan sótti nokkuð í sig veðrið í seinni hálfleiknum án þess að skapa verulega hættu. Áhorfendur í Boganum, sem og leikmenn og þjálfarar, önduðu því léttar þegar flautað var til leiksloka og sigur í höfn.
Fjögur lið í hnapp við toppinn
Með sigrinum í gær er Þór/KA komið með 15 stig í pokann og hefur stillt sér upp með þremur öðrum liðum í toppbarátunni, er reyndar enn í 4. sæti, en fyrir ofan eru Breiðablik, Þróttur og FH með 16 stig, en Þróttur á þó eftir að spila sinn leik í 7. umferðinni. Þessi lið hafa slitið sig örlítið frá öðrum liðum því liðin í 5. og 6. sætinu, Fram og Stjarnan, eru sex stigum á eftir Þór/KA.
Þór/KA - Stjarnan 1-0 (1-0)
Tölur og fróðleikur
- 1 - Leikurinn í gær var sá fyrsti í deildinni sem liðið heldur markinu hreinu. Áður hafði liðið haldið hreinu í bikarsigrinum gegn KR. Jessica Berlin stóð í markinu í gær, en Harpa Jóhannsdóttir hélt hreinu í bikarleiknum.
- 4 - Margrét Árnadóttir átti stoðsendinguna í marki Söndru Maríu og var það hennar fjórða stoðsending í mörkum liðsins í deildinni í sumar. Hulda Ósk Jónsdóttir, sem átti flestar stoðsendingar í deildinni í fyrra, er jöfn Margréti með fjórar stoðsendingar í fyrstu sjö umferðunum.
- 6 - Sandra María Jessen fikrar sig áfram upp markalistann og hefur nú skorað sex mörk í síðustu þremur leikjum og er í 2.-3. sæti á markalista Bestu deildarinnar. Auk markanna sex hefur Sandra María einnig átt þrjár stoðsendingar í mörkum liðsins.
- 20 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir spilaði sinn 20. leik í efstu deild.
- 60 - Amalía Árnadóttir spilaði sinn 60. leik fyrir Þór/KA. Þar af eru 45 leikir í efstu deild.
- 60 - Bríet Jóhannsdóttir spilaði einnig sinn 60. leik fyrir Þór/KA. Þar af eru 39 leikir í efstu deild.
- 130 - Margrét Árnadóttir spilaði sinn 130. leik í efstu deild á Íslandi, en hún á einnig að baki fimm leiki í efstu deild á Ítalíu 2022.
- 250 - Hulda Ósk Jónsdóttir spilaði í gær sinn 250. leik fyrir Þór/KA. Þar af eru 166 í efstu deild, 19 í bikarkeppni, 58 í deildabikar, tveir í meistarakeppni KSÍ og fimm í Meistaradeild Evrópu.