Karfan er tóm.
Þór/KA vann 1-0 sigur á Val á útivelli í 19. umferð Bestu deildarinnar, sem jafnframt var fyrsta umferð í neðri hluta deildarinnar eftir skiptingu. Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleiknum.
Spennan magnast með hverjum leik og hverri umferð í baráttu fjögurra neðstu liðanna við að forðast fall úr deildinni. Með sigrinum í gær komst Þór/KA úr botnsætinu upp í 8. sætið. Þegar tveimur umferðum er ólokið er Fram með 23 stig, Þór/KA 22 stig, Víkingur 21 stig og Valur 20 stig.
Leikurinn í gær einkenndist af mikilli baráttu enda hvert einasta stig mikilvægt á þessum lokakafla deildarinnar. Ástríðan að baki leiknum var mikil og bæði lið börðust af hörku. Baráttan og ástríðan innan vallar sem utan var til fyrirmyndar og sigurviljinn sannarlega til staðar. Á endanum skilaði það sigri og þremur dýrmætum stigum í hnífjafnri baráttu fjögurra liða.
Þó ekkert hafi verið skorað í fyrri hálfleiknum voru færin til staðar. Margrét Árnadóttir átti skot í stöng á 8. mínútu og um tveimur mínútum síðar lagði Margrét boltann fyrir Karen Maríu Sigurgeirsdóttur, sem átti skot af stuttu færi sem markvörður Vals varði vel. Færin urðu fleiri, en það var ekki fyrr en á 63. mínútu sem eina mark leiksins leit dagsins ljós. Hildur Anna Birgisdóttir tók þá hornspyrnu frá hægri, Arna Sif skallaði boltann sem síðan barst út í teiginn til Huldu Óskar, hún reyndi skot eða sendingu inn á markteiginn þar sem Margrét tók við boltanum og náði að koma honum yfir marklínuna.
Valur - Þór/KA 0-1 (0-0)

Byrjunarliðið gegn Val. Aftari röð frá vinstri: Libby Moore, María Dögg Jóhannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir og Angela Mary Helgadóttir. Fremri röð frá vinstri: Allie Augur, Karen María Sigurgeirsdóttir, Margrét Árnadóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Lauren Lapomarda.
Enn og aftur skal minnt á að síðasti heimaleikur okkar er á dagskrá næsta föstudag, 25. september, kl. 18. Frítt er á leikinn í boði Bílaleigu Akureyrar og Grand þvottar ehf.
25.09.: Valur - Víkingur
25.09.: Þór/KA - Fram
- - -
02.10.: Fram - Valur
02.10.: Víkingur - Þór/KA

