Þór/KA hefur ekki oft sótt gull í greipar Hlíðarenda. Sigurinn á laugardag var því nokkuð sögulegur enda aðeins annar sigur Þórs/KA á Val í efstu deild Íslandsmótsins að Hlíðarenda. Rúm sautján ár (6.253 dagar) á milli og Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði báða leikina.
Þó svo sigurinn á laugardaginn sé aðeins annar sigur Þórs/KA á Val að Hlíðarenda í efstu deild Íslandsmótsins er þetta þó þriðji sigurinn á Val á útivelli i efstu deild. Sumarið 2016 spilaði Valur nefnilega á Laugardalsvelli þegar unnið var að uppbyggingu núverandi gervigrasvallar félagsins að Hlíðarenda. Þór/KA vann Val á þjóðarleikvanginum það sumar.
Leikskýrsla: Valur-Þór/KA - 1-2 Fyrsti sigur Þórs/KA á Val að Hlíðarenda leit dagsins ljós í 14. umferð mótsins þann 7. ágúst 2009. Dragan Stojanovic og Siguróli Kristjánsson stýrðu þá liði Þórs/KA. Mateja Zver skoraði bæði mörk Þórs/KA.
Leikskýrsla: Valur-Þór/KA - 0-4 Annar sigur Þórs/KA á Val á útivelli í efstu deild Íslandsmótsins leit dagsins ljós á Laugardalsvelli í 16. umferð mótsins, 1. september 2016. Markvörður Vals fékk að líta rauða spjaldið á 64. mínútu þegar staðan var 0-0. Þór/KA gekk á lagið og skoraði fjögur mörk, niðurstaðan 4-0 sigur. Klara Lindberg skoraði þrennu og Sandra María Jessen skoraði eitt mark. Jóhann Kristinn Gunnarsson stýrði liði Þórs/KA með Siguróla Kristjánsson og Unnar Þór Garðarsson með sér sem aðstoðarþjálfara í þessum leik.
Leikskýrsla: Valur-Þór/KA - 0-1 Þriðji sigurinn varð svo til í 19. umferð mótsins síðastliðinn laugardag, 19. september, þegar Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins. Ótrúlegt en satt, Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði ekki aðeins allan leikinn á laugardaginn heldur spilaði hún einnig allan leikinn í fyrsta sigrinum 2009. Bæði skiptin var Arna Sif í treyju nr. 11. Hér stýrðu liðinu þair Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Jóhann Hreiðarsson og Sveinn Leó Bogason.
Bæði árin sem Þór/KA varð Íslandsmeistari gerðu liðin jafntefli að Hlíðarenda. Árið 2012 urðu lokatölur 2-2 þar sem Johanna Rasmussen og Dagný Brynjarsdóttir komu Val í 2-0, en Katrín Ásbjörnsdóttir og Lillý Rut Hlynsdóttir skoruðu seint í leiknum og tryggðu jafnteflið. Sumarið 2017 endaði leikurinn að Hlíðarenda 1-1 þar sem Stephany Mayor kom Þór/KA yfir, en Vesna Smiljkovic jafnaði.
Einnig með Val: Inga Dís Júlíusdóttir (2016), Vesna Smiljkovic (2016), Lillý Rut Hlynsdóttir (2026)
Valdir kaflar úr leiknum á laugardaginn
Myndin með fréttinni er af byrjunarliðinu gegn Val laugardaginn 19. september 2026. Aftari röð frá vinstri: Libby Moore, María Dögg Jóhannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir og Angela Mary Helgadóttir. Fremri röð frá vinstri: Allie Augur, Karen María Sigurgeirsdóttir, Margrét Árnadóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Lauren Lapomarda.