Karfan er tóm.
Þrátt fyrir ágætan leik að mörgu leyti og góð færi bættust engin stig í pokann í ferð okkar til Njarðvíkur síðastliðinn fimmtudag þegar við mættum liði Grindavíkur/Njarðvíkur í fyrsta heimaleik liðsins í efstu deild og mögulega fyrsta efstudeildarleik á Njarðvíkurvelli, sem þessa dagana gengur undir nafninu JBÓ-völlurinn. Þór/KA náði forystunni með marki Erin Flurey á 15. mínútu, en tvö mörk gestgjafanna í seinni hálfleik færðu þeim öll stigin.
Erin Flurey náði forystunni fyrir Þór/KA eftir stundarfjórðung. Þór/KA vann þá boltann eftir markspyrnu heimaliðsins, María Dögg sendi á Birgittu Rún, hún til baka á Amalíus em átti stungusendingu inn fyrir vörnina á Margréti. Varnarlína Grindavíkur/Njarðvíkur lyfti höndum og vildi fá rangstöðudóm, en þeim skjátlaðist reyndar því Margrét var réttstæð þegar Amalía sendi boltann. Margrét lék inn í teiginn hægra megin og gaf hnitmiðaða sendingu fyrir markið á Erin sem skoraði af öryggi. Erin komst síðan í upplagða stöðu um fimm mínútum síðar þegar hún var komin ein inn fyrir vörn gestgjafanna, en skot hennar fór yfir.
Bæði lið sköpuðu sér nokkur góð færi og góðar stöður í fyrri hálfleiknum, Þór/KA þó fleiri en heimaliðið, en skotin rötuðu ýmist yfir eða þá að markverðir og varnarmenn voru vel á verði og komu í veg fyrir mörk. Svipað var uppi á teningnum í seinni hálfleiknum, nokkur góð færi sem fóru forgörðum hjá okkar liði, en það var hins vegar heimaliðið sem kom boltanum í markið, tvisvar þegar upp var staðið. Natasha Anasi jafnaði á 63. mínútu og Sigríður Emma F. Jónsdóttir skoraði eftir hornspyrnu á lokamínútu leiksins.
Mjög svekkjandi niðurstaða eftir frammistöðu liðsins í leiknum, ágæta spilkafla og sköpuð færi sem ekki nýttust.
Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1 (0-1)

Byrjunarliðið okkar í leiknum. Aftari röð frá vinstri: Arna Sif Ásgrímsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Amalía Árnadóttir, Margrét Árnadóttir, Allie Augur og Birgitta Rún Finnbogadóttir. Fremri röð frá vinstri: Erin Flurey, Hulda Björg Hannesdóttif fyrirliði, Elísa Bríet Björnsdóttir, Bríet Jóhannsdóttir og Karen María Sigurgeirsdóttir.