Besta deildin: Tap í baráttuleik í Laugardalnum

Þrátt fyrir mikla baráttu og að flestu leiti góðan leik þegar Þór/KA sótti Þrótt heim í 8. umferð Bestu deildarinnar í gær urðu stigin öll eftir í Laugardalnum. Ódýr mörk heimaliðsins, þar af annað sem átti aldrei að standa, og illa nýtt færi hjá okkar liði réðu úrslitum. Þór/KA er áfram í 4. sæti deildarinnar eftir 8. umferðina.

Þór/KA hafði yfirhöndina að mestu í fyrri hálfleiknum og átti hættulegri færi. Þróttur náði hins vegar forystu með marki sem kom upp úr hornspyrnu á 39. mínútu. Leikmenn mótmæltu ákaft þar sem leikmaður Þróttar lagði boltann fyrir sig með hendinni, en það fór framhjá dómurum leiksins og markið dæmt gott og gilt. Minnstu munaði að Sandra María næði að jafna skömmu eftir mark Þróttar. Á lokamínútu fyrri hálfleiksins skoruðu Þróttarar aftur, en leikmaður augljóslega rangstæður og markið því ekki gilt.

Snemma í seinni hálfleiknum bættu Þróttarar við öðru marki eftir hraða sókn. Bæði lið fengu áfram ágæt færi í seinni hálfleiknum og líklega voru þau fleiri og betri en í þeim fyrri. Á góðum degi hefði okkar lið getað skorað þrjú, fjögur eða fimm mörk í leiknum, en skotin úr bestu færunum rötuðu flest ef ekki öll beint í fangið á markmanni Þróttar. 

Þór/KA átti að flestu leyti góðan leik, ef undan eru skilin tvö ódýr mörk og svo það að ná ekki að nýta kjörin tækifæri upp við mark heimaliðsins. Vissulega rándýr atriði sem ráða úrslitum og ekki spurt að því þegar lokatölurnar eru færðar inn í stigatöfluna. Frammistaðan heilt yfir góð að öðru leyti í baráttuleik, en vissulega ekki vænlegt til sigurs að fá á sig ódýr mörk á sama tíma og færin eru ekki nýtt. Leikmenn fengu líka lítið fyrir sinn snúð hjá dómurum leiksins og til að mynda fékk Sandra María mjög óblíðar móttökur án þess að á því væri tekið að nokkru marki. 

 

Þróttur - Þór/KA 2-0 (1-0)

Röð efstu liða er óbreytt á milli umferða, en öll þrjú liðin fyrir ofan Þór/KA unnu sína leiki og fjarlægðust því aðeins, í bili að minnsta kosti. Þróttur er með 22 stig, Breiðablik og FH 19 og Þór/KA með 15 stig í 4. sætinu. 

Næsti deildarleikur liðsins verður heimaleikur gegn Breiðabliki 16. júní, en áður en að honum kemur eru átta liða úrslit Mjólkurbikarkeppninnar á dagskrá. Þór/KA fær FH í heimsókn í Bogann fimmtudaginn 12. júní.

Tölur og fróðleikur

  • 30 - Sonja Björg Sigurðardóttir spilaði sinn 30. leik fyrir Þór/KA, en hún hefur samtals spilað 68 leiki í meistaraflokki, 27 fyrir Völsung og 11 með Hömrunum.
  • 40 Bríet Jóhannsdóttir spilaði sinn 40. leik í efstu deild. Hún hefur samtals spilað 61 leik í meistaraflokki í KSÍ-mótum.
  • 60 - Angela Mary Helgadóttir spilaði sinn 60. leik í meistaraflokki samanlagt í KSÍ-mótum. Þar af eru 48 fyrir Þór/KA og 12 fyrir Hamrana.
  • 100 - Agnes Birta Stefánsdóttir spilaði sinn 100. leik fyrir Þór/KA. Þar af eru 66 leikir í efstu deild. Meistaraflokksleikirnir eru þó fleiri, samtals 122, því hún á einnig að baki leiki fyrir Hamrana og Tindastól í næstefstu deild.
  • 200 - Margrét Árnadóttir spilaði sinn 200. meistaraflokksleik þegar taldir eru saman leikir í KSÍ-mótum hér á landi, fjórir leikir með Þór/KA í Meistaradeild Evrópu og fimm leikir sem hún spilaði á Ítalíu á fyrri hluta árs 2022. Leikirnir fyrir Þór/KA eru því 195.
  • 260 - Sandra María Jessen spilaði sinn 260. leik fyrir Þór/KA í KSÍ-mótum, en hún er samanlagt komin í 308 leiki að meðtöldum leikjum í efstu deildum í Tékklandi og Þýskalandi.