Margrét Árnadóttir skoraði eina mark Þórs/KA í 1-2 tapi gegn Fram í gær. Myndin er úr fyrri leik liðanna á Akureyri í sumar. Mynd: Ármann Hinrik.
Þrjú lið munu berjast í lokaumferð neðri hluta Bestu deildarinnar um eitt sæti sem í boði er fyrir áframhaldandi veru í Bestu deildinni, Þór/KA, Víkingur og Valur. Fram tryggði sér 7. sætið og sæti í Bestu deildinni áfram með 2-1 sigri gegn Þór/KA í heimsókn sinni til Akureyrar í gærkvöld.
Gestirnir náðu tveggja marka forskoti með mörkum á 11. og 18. mínútu, en áður hafði Þór/KA fengið mjög gott færi eftir misheppnaða sendingu í vörn Fram. Á 36. mínútu var dæmt víti á markvörð Fram eftir brot á Lauren Lapomarda rétt innan vítateigslínunnar eftir frábæra sendingu frá Huldu Ósk Jónsdóttur inn á teiginn. Margrét Árnadóttir fór á vítapunktinn og skoraði af öryggi. Áður höfðu tvö eða þrjú mjög góð marktækifæri farið forgörðum hjá okkar liði.
Hvorugu liðinu tókst að skora í seinni hálfleik og niðurstaðan 1-2 tap. Nokkur þokkaleg færi litu dagsins ljós í seinni hálfleiknum án þess að úr yrði mark. Minnstu munaði þó að Örnu Sif tækist að jafna í blálokin. Niðurstaðan því ósigur á heimavelli í best sótta leik okkar á tímabilinu.
Þór/KA - Fram 1-2 (1-2)
Tölur og fróðleikur
- 20 - Allie Augur spilaði sinn 20. leik í Bestu deildinni.
- 100 - María Dögg Jóhannesdóttir spilaði sinn 100. leik í efstu deild. Þar af eru 20 leikir með Þór/KA og 80 með Tindastóli. Fyrsti leikur Maríu í efstu deild var í 1-1 jafntefli Tindastóls og Þróttar á Sauðárkróksvelli 5. maí 2021.
- 100 - Hulda Ósk Jónsdóttir hefur nú tekið þátt (byrjað eða komið inn á) í 100 leikjum í röð í efstu deild. Í pistli Víðis Sigurðssonar á Facebook fyrr í sumar sem sagt var frá á vefnum Akureyri.net er Hulda Ósk sú knattspyrnukona sem nú spilar í deildinni sem hefur spilað flesta leiki samfleytt í efstu deild. Leikjunum hefur fjölgað jafnt og þétt frá því að Víðir setti þetta fram og eru leikirnir nú orðnir 100, án þess að hún hafi misst úr leik í deildinni. Þessi 100 leikja hrina hófst í maí 2022 í Vestmannaeyjum, í ótrúlegum 5-4 sigri ÍBV gegn Þór/KA. Frá og með þeim leik urðu leikirnir 13 sumarið 2022, 23 bæði 2023 og 2024, 21 árið 2025 og eru nú orðnir 20 á yfirstandandi tímabili. Samtals 100 leikir óslitið.
- 200 - Hulda Ósk Jónsdóttir spilaði sinn 200. leik í efstu deild fyrir Þór/KA. Samanlagt á hún að baki 216 leiki í efstu deild, þar af 16 með KR.
- 217 - Arna Sif Ásgrímsdóttir er komin upp í 4.-5. sætið yfir þær knattspyrnukonur sem spilað hafa flesta leiki í efstu deild fyrir sama félagið. Leikirnir eru orðnir 217, jafn margir og Málfríður Erna Sigurðardóttir spilaði í efstu deild fyrir Val. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er með einum leik Meira fyrir Stjöruna, en þar fyrir ofan eru Anna María Baldursdóttir með 240 leiki fyrir Stjörnuna og efst er Dóra María Lárusdóttir með 269 leiki fyrir Val. Arna Sif getur því komið sér upp að hlið Ásgerðar Stefaníu í lokaleik deildarinnar í næstu viku. Hún kom sér inn á topp tíu listann í byrjun maí og hefur síðan þá klifrað upp listann, farið upp fyrir Hörpu Þorsteinsdóttur, Rakel Logadóttur, Auði Skúladóttur og Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur.
- 322 - Samkvæmt nákvæmri talningu gæslufólks mættu 322 manns á leikinn, sem gerir hann að fjölsóttasta heimaleik okkar í sumar. Næstir komu leikurinn gegn Val með 200 áhorfendur og FH með 177.
Hópurinn
- Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir (Erin 52'), Libby Moore, María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir (Amalía 88'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Margrét Árnadóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir (Halla Bríet 68'), Lauren Lapomarda.
- Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Amalía Árnadóttir (88'), Birgitta Rún Finnbogadóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Agnes Birta Stefánsdóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir (68'), Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Erin Flurey (52').
Staðan
Með sigrinum í gærkvöld tryggði Fram sér 7. sæti deildarinnar og þar með áframhaldandi veru í Bestu deildinni. Tvö af hinum liðunum berjast í lokaumferðinni við að forðast fall úr deildinni. Þór/KA og Víkingur eru jöfn að stigum, bæði með 22 stig, en Þór/KA með mun betri markatölu. Valur er með 21 stig í 10. sætinu. Leikur Þórs/KA og Víkings í lokaumferðinni er því eins konar úrslitaleikur um sæti í deildinni, sigurliðið sleppur, en geri liðin jafntefli gæti Valur farið upp fyrir þau með sigri á Fram.
- Fram 26 stig - markamunur -14
- Þór/KA 22 stig - markamunur -4
- Víkingur 22 stig - markamunur -11
- Valur 21 stig - markamunur -10
Lokaumferðin
02.10.: Fram - Valur
02.10.: Víkingur - Þór/KA



