Byrjunarliðið í heimaleik gegn Víkingi 30. maí 2026.
Aftari röð frá vinstri: Hulda Ósk Jónsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Margrét Árnadóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir.
Fremri röð frá vinstri: Erin Flurey, Hildur Anna Birgisdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Allie Augur og Karen María Sigurgeirsdóttir.
Mynd: Ármann Hinrik.
- - -
Það hefur dregist úr hófi að setja hér inn upplýsingar og úrslit, tölur og fróðleik, eftir nokkra síðustu leiki okkar. Það að gengi liðsins er undir væntingum er þó ekki ástæða fyrir færri fréttum hér á vefnum en venjulega heldur annríki fréttaritara.
Hér verða því listuð upp úrslit úr nokkrum síðustu leikjum okkar ásamt mörkum og stoðsendingum. Að venju fylgir svo smá talnafróðleikur.
Arna Sif Ásgrímsdóttir lék í dag sinn 279. leik í efstu deild á Íslandi og er þar með orðinn þriðja leikjahæst í efstu deild hér á landi, eins og fram kom í pistli Víðis Sigurðssonar sem sagt var frá á akureyri.net. Hún tók fram úr Fanndísi Friðriksdóttur í leiknum í dag. Arna Sif á svo reyndar einnig að baki leiki í efstu deild í Svíþjóð 2015 og Ítalíu 2017 og er eftir því sem næst verður komist komin í 303 leiki í efstu deild.
Besta deildin - 7. umferð - 30. maí
Þór/KA - Víkingur 4-6 (0-4)
- 0-1 - Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (1').
- 0-2 - Freyja Stefánsdóttir (23').
- 0-3 - Jasmín Erla Ingadóttir (26')
- 0-4 - Freyja Stefánsdóttir (31')
- - -
- 1-4 - Arna Sif Ásgrímsdóttir (60'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir
- 1-5 - Dagný Rún Pétursdóttir (61').
- 1-6 - Jóhanna Elín Halldórsdóttir (67')
- 2-6 - Karen María Sigurgeirsdóttir (72'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir
- 3-6 - Aníta Ingvarsdóttir (74'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
- 4-6 - Emelía Ósk Krüger (88'). Stoðsending: Amalía Árnadóttir
- Leikskýrslan
- Besta deildin
Besta deildin - 6. umferð - 25. maí
-Fram - Þór/KA 3-2 (2-2)
- 0-1 - Margrét Árnadóttir (6'). Stoðsending: María Dögg Jóhannesdóttir.
- 1-1 - Alda Ólafsdóttir (11').
- 2-1 - Taylor Marie Hamlett (12').
- 2-2 - Margrét Árnadóttir (19'). Stoðsending: Arna Sif Ásgrímsdóttir.
- - -
- 3-2 - Alda Ólafsdóttir (49').
- Leikskýrslan
Besta deildin - 5. umferð - 20. maí
Þór/KA - Breiðablik 1-3 (0-0)
- 0-1 - Agla María Albertsdóttir (v)(54').
- 0-2 - Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (67').
- 0-3 - Edith Kristín Kristjánsdóttir (69').
- 1-3 - Hulda Ósk Jónsdóttir (90'). Stoðsending: Aníta Ingvarsdóttir.
- Leikskýrslan
Mjólkurbikarinn - 16 liða úrslit - 15. maí
Þór/KA - Stjarnan 1-4 (1-1)
- 0-1 - Snædís María Jörundsdóttir (8').
- 0-2 - Birgitta Rún Finnbogadóttir (45'). Stoðsending: Bríet Fjóla Bjarnadóttir.
- 0-3 - Edith Kristín Kristjánsdóttir (69').
- 1-3 - Hulda Ósk Jónsdóttir (90'). Stoðsending: Aníta Ingvarsdóttir.
- Leikskýrslan
- Mjólkurbikarinn
Besta deildin - 4. umferð - 10. maí
ÍBV - Þór/KA 2-0 (1-0)
- 1-0 - Allison Grace Lowrey (30').
- 2-0 - Olga Sevcova (68').
- Leikskýrslan
Tölur og fróðleikur - 30. maí gegn Víkingi
- 1 - Aníta Ingvarsdóttir skoraði þriðja mark liðsins og þar með sitt fyrsta mark í Bestu deildinni. Stutt er síðan Aníta spilaði sinn fyrsta leik í deildinni, en það var í 1-1 jafntefli gegn FH í fyrstu umferðinni. Aníta hefur komið við sögu í fjórum leikjum liðsins í deildinni það sem af er sumri, átti stoðsendingu í eina marki liðsing gegn Breiðabliki og skoraði svo í leiknum í gær.
- 3 - Emelía Ósk Krüger kom inn af varamannabekknum á 67. mínútu og skoraði fjórða mark liðsins á 88. mínútu. Emelía Ósk hefur þar með skorað mark í efstu deild þrjú tímabil í röð þrátt fyrir að hún hafi bæði misst töluvert úr vegna meiðsla og ekki spilað margar mínútur í heildina í þeim leikjum sem hún hefur tekið þátt í. Hún á nú að baki 38 leiki í efstu deild, þann fyrsta 2023. Fyrsta markið í efstu deild kom árið eftir.
- 3 - Hulda Ósk Jónsdóttir átti þrjár stoðsendingar í leiknum. Í fyrsta markinu tekur Hildur Anna Birgisdóttir hornspyrnu, Hulda Ósk nær að skalla boltann áður en markvörður Víkinga nær til hans, þaðan berst hann áfram til Örnu Sifjar sem kemur honum yfir línuna. Í öðru markinu fær Hulda Ósk sendingu út til hægri frá Amalíu, leikur inn í teig og sendir fyrir markið þar sem Karen María er mætt og skallar boltann í stöngina og inn. Í þriðja markinu á Karen Hulda langa sendingu upp hægra megin, Hulda Ósk eltir boltann og nær honum á endalínunni, fer framhjá varnarmanni og sendir fasta sendingu fyrir þar sem Aníta Ingvarsdóttir er mætt og skallar í markið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hulda Ósk á stoðsendingaþrennu í leik því sumarið 2024, þegar hún varð stoðsendingadrottning deildarinnar, átti hún þrjár sendingar á Söndru Maríu Jessen sem urðu að mörkum.
- 10 - Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði annað mark liðsins gegn Víkingi og hefur því skorað í efstu deild á hverju ári í tíu tímabil. Fyrsta markið kom 2017. Níu af þessum tíu tímabilum sem Karen María hefur skorað í efstu deild hefur hún spilað með Þór/KA, en eitt tímabil með Breiðabliki, 2022.
- 150 - Margrét Árnadóttir spilaði sinn 150. leik í efstu deild. Þar af eru reyndar fimm á Ítalíu þar sem Margrét spilaði með Parma fyrri hluta sumars 2022, en 145 leikir í efstu deild á Íslandi. Fyrr í mánuðinum spilaði hún sinn 210. leik í meistaraflokki fyrir Þór/KA.
Eldri tölur og fróðleikur
- 10 - María Dögg Jóhannesdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir og Birgitta Rún Finnbogadóttir, sem allar komu til okkar frá Tindastóli í janúar, eru allar komnar með yfir tíu leiki fyrir Þór/KA, spiluðu allar sinn tíunda leik fyrir félagið fyrr í mánuðinum.
- spilaði sinn 10. leik fyrir Þór/KA fyrr í mánuðinum, er núna komin í 13 leiki og samtals að baki 220 leiki í meistaraflokki, þar af 210 fyrir Tindastól. María er að spila sitt 11. tímabil í meistaraflokki.
- 110 - Amalía Árnadóttir spilaði fyrr í mánuðinum sinn 110. leik í meistaraflokki og er nú komin í 113 leiki. Þar af eru 92 fyrir Þór/KA, tíu fyrir Völsung og 11 fyrir Hamrana.
- 230 - Karen María Sigurgeirsdóttir spilaði fyrr í mánuðinum sinn 230 leiki í meistaraflokki. Þeir eru nú orðnir 234, en þar af er 181 fyrir Þór/KA.
- 270 - Hulda Ósk Jónsdóttir spilaði fyrr í mánuðinum sinn 270. leik fyrir Þór/KA, en samtals komin í 309 meistaraflokksleiki í deild, bikar, deildabikar, meistarakeppni og Evrópukeppni. Hulda lék sinn 200. leik í efstu deild í Vestmannaeyjum 10. maí, en þar af eru 185 fyrir Þór/KA.