Besta deildin: Þór/KA sækir Fram heim á morgun

Þór/KA sækir Fram heim á Lambhagavöllinn í Úlfarsárdal í 6. umferð Bestu deildarinnar á morgun, laugardaginn 17. maí. Leikurinn hefst kl. 16:15. Þetta er fyrsta viðureign þessara félaga í efstu deild Íslandsmótsins.

Þór/KA og Fram hafa aldrei mæst í efstu deild, en fyrsta viðureign þessara liða var 23. febrúar í A-deild Lengjubikarsins. Þór/KA vann þann leik 5-1 þar sem Karen María Sigurgeirsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir skoruðu tvö mörk hvor og Margrét Árnadóttir eitt. Alda Ólafsdóttir skoraði mark Fram.

Þór og Fram hafa aldrei mæst í meistaraflokki kvenna, en KA hefur mætt Fram tvisvar í efstu deild og einu sinni í bikarkeppninni. KA vann alla þrjá leikina, 1-0 heima og 4-0 úti í efstu deild 1988 og 6-0 í bikarkeppni KSÍ 1986.

Að loknum fimm umferðum er Þór/KA í 4. sæti deildarinnar með níu stig, hefur unnið þrjá leiki og tapað tveimur. Fram er tveimur sætum neðar með sex stig eftir tvo sigra og þrjú töp.