Besta deildin: Þór/KA tekur á móti Breiðabliki í dag

Þór/KA og Breiðablik mætast í 9. umferð Bestu deildarinnar í Boganum í dag. Flautað verður til leiks kl. 17.

Fyrri hluta af 18 umferða deildarkeppninni lýkur í dag þegar 9. umferð mótsins klárast með tveimur leikjum. Fyrir lokaleiki 9. umferðar er Þróttur í efsta sæti deildarinnar með 22 stig. Þá koma Breiðablik og FH með 19 stig og svo Þór/KA og Fram með 14. 

Bæði lið spiluðu heimaleik í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar á fimmtudag. Breiðablik mætir til leiks með tvo stóra sigra í tveimur síðustu leikjum, 6-0 gegn FHL í deildinni og 5-1 gegn HK í bikarkeppninni. Þór/KA beið lægri hlut fyrir FH í bikarkeppninni á fimmtudagskvöld og fyrir Þrótti í 8. umferð Bestu deildarinnar þar á undan.

Þremur leikjum er lokið í 9. umferðinni og óhætt að segja að úrslitin gefi bæði okkar liði og öðrum tækifæri til að koma sér vel inn í baráttu efstu liðanna. 

Staðan í deildinni þegar þremur leikjum er lokið í 9. umferðinni: 

9. umferð

  • FHL - Víkingur 0-4
  • Valur - Fram 1-2
  • Stjarnan - Þróttur 2-0
  • Þór/KA - Breiðablik í Boganum kl. 17
  • FH - Tindastóll

Eins og ávallt er mikilvægt að fá okkar fólk í Bogann til að láta vel í sér heyra og hvetja stelpurnar til dáða. Það skiptir miklu máli að fá stemningu í húsið og taka þannig af krafti á móti gestunum, innan vallar sem utan.