Besta deildin: Þór/KA tekur á móti Fram

Það er heimaleikur á dagskránni í dag, mikilvæg stig í boði í baráttu sex liða við að komast upp fyrir strik áður en deildinni verður tvískipt og um leið barátta við að forðast fall úr deildinni í haust. Þór/KA tekur á móti liði Fram í dag og verður flautað til leiks kl. 18.

Enn og aftur er vert að minna á að góður stuðningur úr stúkunni skiptir alltaf máli. Góð mæting og jákvæður stuðningur við liðið okkar getur gert útslagið, gefið þann aukakraft sem þarf til að knýja fram sigur. 

Leikur dagsins er í 15. umferð mótsins, en liðin hafa þó aðeins lokið 13 leikjum. Tíunda umferð mótsins er enn óspiluð, en hún var færð aftur fyrir og spilast 6. september. 

Fjögur lið hafa skorið sig nokkuð frá hinum í stigasöfnun, en staða sex neðri liðanna að loknum 13 umferðum er eftirfarandi:

  • 5. Grindavík/Njarðvík
    16 stig 
    -7 í markamun
    Leikir eftir: ÍBV (h), Breiðablik (ú), Fram (h), Víkingur (ú), Valur (h)
  • 6. Fram
    16 stig
    -9 í markamun
    Leikir eftir: Þór/KA (ú), FH (h), Grindavík/Njarðvík (ú), Stjarnan (h), ÍBV (ú)
  • 7. Þróttur (14 leikir)
    15 stig
    -5 í markamun
    Leikir eftir: Valur (h), ÍBV (ú), Þór/KA (h), Breiðablik (h)
  • 8. Þór/KA
    12 stig 
    -7 í markamun
    Leikir eftir: Fram (h), Víkingur (ú), Valur (h), Þróttur (ú), FH (ú)
  • 9. Víkingur
    11 stig
    -12 í markamun
    Leikir eftir: Valur (ú), Þór/KA (h), FH (ú), Grindavík/Njarðvík (h), Stjarnan (ú)
  • 10. Valur
    10 stig
    -13 í markamun
    Leikir eftir: Víkingur (h), Þróttur (ú), Þór/KA (ú), FH (h), Grindavík/Njarðvík (ú)

Leikir 15. umferðar

  • 06.08.: Stjanan - Þróttur 1-1
  • 07.08.: Þór/KA - Fram
  • 07.08.: Grindavík/Njarðvík - ÍBV
  • 07.08.: Valur - Víkingur
  • 15.08.: FH - Breiðablik