Karfan er tóm.
Þór/KA og Stjarnan mætast í 7. umferð Bestu deildarinnar í Boganum í dag kl. 13. Vakin er athygli á óvenjulegum leiktíma.
Bæði lið unnu leiki sína í síðustu umferð. Þór/KA van 3-1 útisigur á Fram og Stjarnan 1-0 heimasigur gegn FHL. Þessi félög hafa oft mæst í efstu deild Íslandsmótsins og verður leikurinn í dag 42. viðureign liðanna í efstu deild. Stjarnan hefur unnið nákvæmlega tvo leiki fyrir hvern einn sem Þór/KA hefur unnið, eða 22 á móti 11, en átta sinnum hefur jafntefli orðið niðurstaðan. Þegar öll mót eru talin verður leikurinn í dag 69. viðureign þessara félaga.
Eftir fyrstu sex umferðirnar er Þór/KA í 4. sætinu með 12 stig og Stjarnan sæti neðar með níu stig.
Þrír leikir sjöundu umferðinarinnar voru spilaðir í gærkvöld og staðan því breytt frá myndinni hér að ofan.