Besta deildin: Þór/KA tekur á móti Þrótti í kvöld

Þór/KA tekur á móti Þrótti í 9. umferð Bestu deildarinnar í kvöld kl. 18. Hvetjum okkar fólk til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar.

Eins og okkar fólk þekkir hefur gengi liðsins ekki verið eins og vonir stóðu til í sumar. Liðið situr í 10. sæti deildarinnar með þrjú stig að loknum átta umferðum, en það er alls ekki sú staða sem við viljum vera í. Enn er þó nóg eftir af mótinu og engin uppgjöf á dagskránni. 

Nú er einfaldlega á dagskrá að þétta raðirnar utan vallar sem innan. Liðið allt, leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar, allir munu berjast áfram fyrir því að ná úrslitum, safna stigum og koma okkur upp töfluna. Áfram verður barist fyrir hverju einasta stigi sem í boði er.

Í því verkefni eru stuðningsmennirnir einnig gríðarlega mikilvægir. Stuðningurinn er aldrei mikilvægari en einmitt þegar staðan er sem verst og þörf á sameiginlegu átaki til að breyta gangi leiksins. Þess vegna er mikilvægt að við fáum okkar fólk í stúkuna, ekki bara til að horfa heldur einnig til að hvetja liðið áfram með jákvæðum og uppbyggilegum hætti. Stuðningurinn skiptir máli þó hann skili ekki alltaf þeim stigum eða þeim árangri sem við vonumst eftir.