Karfan er tóm.
Þór/KA tekur á móti Val í 17. umferð Bestu deildarinnar á morgun, föstudaginn 21. ágúst. Flautað verður til leiks kl. 18.
Fyrir þau sem ekki þekkja til fyrirkomulags á keppninni í Bestu deild kvenna er það í grundvallaratriðum svona:
Því miður hefur aðsókn að leikjum okkar í Bestu deildinni dregist saman á undanförnum árum. Sjálfboðaliðar á okkar vegum telja í stúkunni á hverjum heimaleik og er tala yfir fjölda áhorfenda færð á leikskýrslu. Þetta er gert af nokkurri nákvæmni, ekkert giskað og engar ýkjur. Að meðaltali hafa um 113 manns mætt á hvern heimaleik okkar í Bestu deildinni í sumar. Við erum auðvitað þakklát hverjum og einum sem mætir á einn leik eða fleiri. Flestir áhorfendur mættu á fyrsta deildarleikinn okkar þann 25. apríl gegn FH, eða 177. Næstflestir mættu í stúkuna þegar Jóhann Kristinn mætti norður með Þrótt þann 22. júní, eða 171. Fæstir hafa áhorfendur verið 65. En okkur langar að fá fleiri á völlinn.

Hver vill ekki taka þátt í og upplifa svona augnablik? Karen Hulda Hrafnsdóttir, fædd 2009, fagnar hér sínu fyrsta marki í Bestu deildinni. Mynd: Ármann Hinrik.
Oft hefur verið minnt á það á vef og samfélagsmiðlum félagsins að mæting á völlinn skiptir máli, jákvæður stuðningur úr stúkunni skiptir máli. Hér með er skorað á Akureyringa að taka þátt í að bæta áhorfendametið okkar í sumar í hverjum einasta heimaleik sem eftir er. Til þess þurfum við 178 manns á leikinn á morgun, en væri auðvitað gaman að fara bara beint í 300.
Það kann að hljóma eins og klisja, en það skiptir í alvöru máli fyrir leikmenn inni á vellinum að fá fleiri á völlinn og fá jákvæða strauma og öflugan stuðning í leikjunum. Slíkt getur skipt sköpum ef neistann vantar - þá getum við kveikt hann. Oft er það þannig á íþróttakappleikjum að áhorfendur bíða eftir því að liðið þeirra fari í gang og kveiki í þeim neistann - en auðvitað ætti það að vera öfugt. Fyrir leik og um leið og leikur hefst eigum við að taka þátt í að kveikja í liðinu okkar, ekki bíða eftir að liðið kveiki í okkur.

Tökum þátt í gleðinni og hjálpum til við að skapa hana. Mynd: Ármann Hinrik.
Baráttan fram undan í þeim þremur umferðum sem eftir eru fyrir tvískiptingu er jöfn og spennandi. Núna munar átta stigum á liðunum í 5. og 10. sæti þegar níu stig eru í pottinum. Breiðablik tók toppsætið með 3-0 sigri á FH í síðustu umferð. Breiðablik er með 36 stig, FH með 33 stig. Næst koma ÍBV með 24 stig og Stjarnan 23 stig. Af öðrum liðum munu tvö ná að verða fyrir ofan strik við tvískiptinguna. Sem stendur eru það Grindavík/Njarðvík og Þór/KA.
Staða neðstu sex liða er þessi:

Tökum þátt í gleðinini og hjálpum til við að skapa hana. Mynd: Ármann Hinrik.
Þó svo liðin eigi enn eftir þrjá leiki er það 17. umferðin sem er næst á dagskrá, einfaldlega vegna þess að 10. umferð mótsins, sem átti að spilast í lok júní, var færð aftur fyrir mótið vegna þátttöku U19 landsliðsins í lokamóti EM í byrjun júlí. Það þýðir að 10. umferðin verður spiluð 6. september, en í millitíðinn er 18. umferðin á dagskrá 29. ágúst.
Leikir 17. umferðarinnar verða spilaðir í dag og á morgun.