Besta deildin: Þór/KA tekur á móti Víkingi í dag

Þór/KA leikur í dag síðasta leik sinn í Bestu deildinni fyrir EM hléið sem gert er á deildinni á meðan íslenska landsliðið spilar á EM í Sviss. Leikur dagsins er gegn Víkingi og hefst kl. 17. Hamborgararnir verða klárir í Hamri um kl. 16:30.

Leikur Þórs/KA og Víkings hefst kl. 17 og er í 10. umferð mótsins. Fyrir leikinn er Þór/KA í 4. sæti Bestu deildarinnar með 15 stig úr fyrstu níu leikjunum, en Víkingur er í 9. sæti með sjö stig. Þessi lið mættust í fyrstu umferð mótsins í apríl, á Víkingsvellinum. Þór/KA vann þann leik 4-1. Víkingur mætti FHL á útivelli í 9. umferðinni og vann 4-1, en Þór/KA tapaði heima fyrir Breiðabliki, 0-2. 

Að lokinni 10. umferðinni kemur landsliðið saman til lokaundirbúnings fyrir EM. Hlé verður gert á deildinni þar til seint í júlí og því engin ástæða til annars en að fylla Bogann í dag því næsti heimaleikur verður ekki fyrr en 7. ágúst. Fyrsti leikur liðsins eftir hlé er hins vegar útileikur gegn Tindastóli á Sauðárkróki 24. júlí.

Við hvetjum fólk til að sýna stelpunum alvöru stuðning. Fjölmennum í Bogann og látum vel í okkur heyra. Stuðningurinn skiptir máli, bæði þegar vel gengur og ekki síður þegar á móti blæs.