Besta deildin: Þriðji heimasigurinn í röð

Mynd: Ármann Hinrik
- - -
Mynd: Ármann Hinrik
- - -

Barátta, ákveðni, samheldni og góður stuðningur skiluðu Þór/KA þremur stigum úr viðureign liðsins við ÍBV í gær. Lokatölur urðu 2-1 og er þetta þriðji heimasigur liðsins í röð.

Þór/KA færðist upp um nokkur sæti í töflunni með sigrinum, en gríðarlega jöfn og hörð barátta er fram undan á milli sex neðstu liðanna. Fjögur efstu liðin hafa slitið sig nokkuð frá hinum. ÍBV er einmitt í fjórða sætinu, en með gott forskot á næsta lið.

Erin Flurey og Bríet Jóhannsdóttir skoruðu mörkin okkar í gær, Erin snemma í fyrri hálfleik og Bríet snemma í þeim seinni. ÍBV minnkaði muninn í seinni hálfleik, um tíu mínútum eftir mark Bríetar. Þór/KA fékk reyndar nokkur ágætis færi til að auka forystuna, en niðurstaðan varð eins marks sigur.

Þór/KA - ÍBV 2-1 (1-0)

Fróðleikur og tölfræði

  • 10 - Karen Hulda Hrafnsdóttir, fædd 2009, spilaði í gær sinn 10. leik í Bestu deildinni. 
  • 124 - Gæslufólk okkar taldi 124 áhorfendur á leiknum. Við erum alltaf nákvæm í þessu, teljum bara það sem við sjáum og ýkum ekkert. 
  • 150 - Margrét Árnadóttir spilaði í gær sinn 150. leik í Bestu deildinni og þeir eru að sjálfsögðu allir fyrir Þór/KA.

Hópurinn

  • Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir (Hildur Anna, 73'), Amalía Árnadóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Margrét Árnadóttir, Bríet Jóhannsdóttir (Birgitta Rún, 87'), Hulda Ósk Jónsdóttir (Elísa Bríet, 64'), Erin Flurey (Emelía Ósk, 87').
  • Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Hildur Anna Birgisdóttir (73'), Birgitta Rún Finnbogadóttir (87'), Elísa Bríet Björnsdóttir (64'), Eva Dolina-Sokolowska, Emelía Ósk Krüger (87'),  Agnes Birta Stefánsdóttir (87'), Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir.
  • Mörk: Erin Flurey (7'), Bríet Jóhannsdóttir (47').
  • Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
  • Áminning: Angela Mary Helgadóttir, Sveinn Leó Bogason.

Næstu fimm

  • 29. júlí kl. 18
    Breiðablik - Þór/KA
  • 7. ágúst kl. 18
    Þór/KA - Fram
  • 13. ágúst kl. 18
    Víkingur - Þór/KA
  • 21. ágúst kl. 18
    Þór/KA - Valur
  • 29. ágúst kl. 14
    Þróttur - Þór/KA