Karfan er tóm.
Bestu deild kvenna hefur nú verið skipt í tvennt. Sex efstu liðin mætast í einfaldri umferð og fjögur neðstu sömuleiðis. Þór/KA á leiki laugardaginn 19. september, föstudaginn 25. september og föstudaginn 2. október. Liðið fær einn heimaleik, 25. september, og verður frítt á þann leik í boði Grand þvottar og Bílaleigu Akureyrar.
Að loknum 18 umferðum eru það Fram, Valur, Víkingur og Þór/KA sem mætast í neðri hluta Bestu deildarinnar. Þegar upp var staðið var okkar lið aftur komið niður í 10. sæti deildarinnar, en litlu munar á liðunum fjórum sem nú munu berjast við að forðast fall úr deildinni.
Nú er mikilvægara en nokkru sinni að Akureyringar standi saman og styðji kvennaliðið okkar í fótboltanum, öll sem eitt. Stuðningurinn skiptir máli, bæði á heima- og útivelli. Akureyringar og annað stuðningsfólk er því hvatt til að mæta á leikina og láta í sér heyra.
Svona er staðan þegar komið er að lokakaflanum:
Eins og sjá má munar þremur stigum á efsta og neðsta liði í þessum hluta deildarinnar. Níu stig eru í pottinum fyrir hvert lið og hver einasti leikur mikilvægur, hvert einasta stig. Tvö efri liðin fá tvo heimaleiki, en tvö þau neðri fá einn heimaleik.
