Besta deildin: Þrjú falleg mörk og sanngjarn sigur

Þór/KA vann Fram á útivelli í gær, 3-1, og er áfram í 4. sæti deildarinnar. Sandra María Jessen skoraði tvö mörk og Amalía Árnadóttir eitt.

Það var einmuna blíða og nokkur blástur úr austri þegar leikar hófust. Þór/KA lék með vindinn í bakið í fyrri hálfleik og átti hann þátt í því að nokkrar sendingar inn fyrir vörnina rötuðu ýmist í fang markvarðar Fram eða aftur fyrir endamörk. Færin urðu samt sem áður nokkur og eins og stundum vill verða nýttust þau ekki öll.

Amalía Árnadóttir skoraði skemmtilegt mark á 20. mínútu og Sandra María Jessen á 30. mínútu. Mörkin hefðu getað orðið fleiri, en síðasta spyrna fyrri hálfleiksins kom eins og blaut tuska í andlit okkar liðs, Murielle Tiernan minnkaði muninn í eitt mark eftir aukaspyrnu.

Í fyrsta markinu átti Sonja Björg Sigurðardóttir sendingu inn fyrir vörnina, inn á vítateginn vinstra megin. Amalía varð sekúndubroti á undan markverði Fram, potaði boltanum áfram og átti svo í nokkrum átökum við að halda jafnvægi. Boltinn rúllaði í stöngina fjær og Amalía fyrst inn í markteiginn og skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Annað markið kom einnig eftir skemmtilega stoðsendingu. Henríetta Ágústsdóttir var þá með boltann á vinstri kandinum á eigin vallarhelmingi, þræddi hann upp kantinn þar sem Sandra María tók á skeið, fyrst í boltann, æddi í átt að markinu og skoraði með hnitmiðuðu skoti.

Leikmenn létu svo svekkelsið á lokasekúndu fyrri hálfleiksins hvetja sig til dáða í þeim seinni. Blauta tuskan þornaði fljótt í 18 gráðu hita og blæstri. Það tók okkar stelpur um stundarfjórðung að ná þriðja markinu. Eftir það hafði liðið góð tök á leiknum þó ekki hafi verið um einstefnu að ræða. Heimakonur í Fram komust nokkrum sinnum í ákjósanlegar stöður án þess að það skilaði marki. 

Þriðja markið var svo skólabókardæmi um einfaldleika og ákveðni þegar Angela Mary Helgadóttir fékk boltan úti á kanti hægra megin, setti hann í fyrsta inn á markteig þar sem Sandra María laumaði sér fram fyrir varnarmann og skallaði af öryggi í markið. 

Mörkin þrjú voru öll glæsileg og skemmtileg, búin til með fallegum undirbúningi og stoðsendingum og færin kláruð af fagmennsku. Oft er einfalt betra en flókið. Nokkur færi í súginn að auki, eins og gengur, en óþarfi að gráta það of lengi þegar stigin þrjú koma með heim (eitt stig í hverjum bíl), liðið komið með douze points í deildinni og þriðji sigurleikurinn í röð staðreynd, tveir í deild og einn í bikar.

Fram - Þór/KA 1-3 (1-2)

  • 0-1 - Amalía Árnadóttir (20'). Stoðsending: Sonja Björg Sigurðardóttir.
  • 0-2 - Sandra María Jessen (30'). Stoðsending: Henríetta Ágústsdóttir
  • 1-2 - Muriell Tiernan (45').
  • 1-3 - Sandra María Jessen (60'). Stoðsending: Angela Mary Helgadótir.
  • Leikskýrslan
  • Besta deildin

Tölulr og fróðleikur

  • 1 - Amalía Árnadóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild og mætti næstum segja að hún hafi átt stoðsendingu á sjálfa sig því eftir frábæra sendingu frá Sonju Björgu Sigurðardóttur inn fyrir vörnina varð Amalía á undan markverði Fram og potaði boltanum áfram í átt að markinu. Boltinn fór hins vegar í stöngina, en Amalía fylgdi sjálf eftir og setti hann í netið.
  • 9 - Þór/KA hefur náð sér í níu stig á útivöllum það sem af er deildarkeppninni, mest allra liða í deildinni, en liðið er í heildina með 12 stig og í 4. sæti deildarinnar.
  • 10 - Jessica Berlin varði mark Þórs/KA í leiknum í gær og var það hennar 10. leikur fyrir félagið. Þar af eru sex í Bestu deildinni og fjórir í Lengjubikar.
  • 19,5 - Meðalaldur leikmannahópsins í leiknum í gær var 19,5 ár. Byrjunarliðið nokkru eldra, eða 23,7 ára að meðaltali og meðalaldur varamanna var 18,43 ár. Ellie Moreno var langelst varamanna, fædd 2000, en hinar á aldrinum 15-19 ára.
  • 100 - Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir spilaði 100. leik sinn í meistaraflokki í KSÍ-mótum. Þar af er 91 leikur fyrir Þór/KA og níu með Hömrunum.
  • 160 - Sandra María Jessen hefur skorað yfir 160 mörk (deild, bikar og deildabikar). Mörkin hafa komið svo ört í síðustu leikjum að teljarinn hikstaði og varð aðeins á eftir. 160. markið var síðasta markið af þrennunni í bikarsigrinum gegn KR á dögunum, en mörkin eru nú orðin 163 í KSÍ mótum og eitt í Meistaradeildinni 2018. 

 

Staðan í Bestu deildinni að loknum sex umferðum.