Bríet Jóhannsdóttir og Erin Flurey skoruðu fyrir Þór/KA gegn Stjörnunni, en það dugði ekki til því Stjarnan skoraði þrjú mörk og hirti öll stigin. Myndir. Ármann Hinrik.
Heimsókn okkar liðs í Garðabæinn í gær gaf okkur engin stig, þrátt fyrir baráttuhug eftir að hafa lent 1-0 og 3-1 undir, en náð að minnka muninn í 3-2 og ekki verið langt frá því að jafna leikinn á lokamínútunum. Niðurstaðan 3-2 sigur Stjörnunnar.
Stjarnan skoraði snemma leiks, en Bríet Jóhannsdóttir jafnaði í 1-1 seint í fyrri hálfleiknum. Tvö mörk með átta mínútna millibili skiluðu Stjörnunni tveggja marka forskoti áður en Erin Flurey skoraði annað mark Þórs/KA úr víti um það bil sem venjulegur leiktími rann út.
Stjarnan - Þór/KA 3-2 (1-1)
- 1-0 - Fanney Lísa Jóhannesdóttir (6').
- 1-1 - Bríet Jóhannsdóttir (37'). Stoðsending: María Jóhannesdóttir.
- - -
- 2-1 - Snædís María Jörundsdóttir (57').
- 3-1 - Hulda Hrund Arnarsdóttir (65').
- 3-2 - Erin Flurey (90+1')(v).
- Leikskýrslan á vef KSÍ.
- Besta deildin.
Fróðleikur og tölfræði
- 4 - Stjarnan hefur fengið á sig fæst mörk allra liða í deildinni það sem af er, samtals 11 mörk í 11 leikjum, en þar af eru fjögur frá Þór/KA.
- 10 - Í fyrstu 11 leikjum félagsins í Bestu deildinni þetta árið hafa samtals tíu leikmenn skorað mark og mörkin samtals orðin 16. Margrét Árnadóttir er þar efst á lista með fjögur mörk, Erin Flurey með þrjú, Amalía Árnadóttir tvö og eftirtaldar hafa skorað eitt mark hver: Aníta Ingvarsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Emelía Ósk Krüger, Hulda Ósk Jónsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir og María Dögg Jóhannesdóttir.
- 70 - Angela Mary Helgadóttir spilaði sinn 70. leik fyrir Þór/KA, þar af eru 45 leikir í Bestu deildinni.
- 70 - Amalía Árnadóttir spilaði sinn 70. leik í Bestu deildinni og nálgast nú 100 leikina fyrir félagið samanlagt.
- 80 - Elísa Bríet Björnsdóttir spilaði sinn 80. leik í meistaraflokki. Þar af eru 15 fyrir Þór/KA, en 65 fyrir Tindastól.
- 130 - Karen María Sigurgeirsdóttir spilaði sinn 130. leik í efstu deild fyrir Þór/KA. Að auki spilaði hún 17 leiki fyrir Breiðablik í Bestu deildinni og á samanlagt að baki 237 meistaraflokksleiki fyrir Þór/KA, Hamrana og Breiðablik.
- 298 - Þegar Stjarnan náði forystunni á 6. mínútu leiksins hafði Þór/KA haldið markinu hreinu í samtals 298 mínútur. Þar leggjast saman síðustu 23 mínúturnar í 4-6 tapi gegn Víkingi, markalaust jafntefli við Val, 2-0 sigur á Þrótti, 1-0 sigur á Grindavík/Njarðvík og fyrstu fimm mínúturnar í leiknum í gærkvöld. Hreint mark í þrjá heila leiki og bútar úr tveimur, þegar allt er talið.
Hópurinn
- Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir, María Dögg Jóhannesdóttir (Emelía Blöndal, 73'), Karen Hulda Hrafnsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir (Emelía Ósk, 87'), Elísa Bríet Björnsdóttir (Amalía, 73'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)(Agnes Birta, 73'), Margrét Árnadóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir (Birgitta Rún, 61'), Erin Flurey.
- Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Hildur Anna Birgisdóttir, Amalía Árnadóttir (73'), Birgitta Rún Finnbogadóttir (61'), Emelía Ósk Krüger (87'), Agnes Birta Stefánsdóttir (73'), Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (73'), Aníta Ingvarsdóttir.
- Mörk: Bríet Jóhannsdóttir (37'), Erin Flurey (90+1').
- Stoðsending: María Dögg Jóhannesdóttir (37')
- Fengið víti: Erin Flurey.
- Áminning: Margrét Árnadóttir (31')
Næstu fimm
- 19. júlí kl. 16
Þór/KA - ÍBV
- 29. júlí kl. 18
Breiðablik - Þór/KA
- 7. ágúst kl. 18
Þór/KA - Fram
- 13. ágúst kl. 18
Víkingur - Þór/KA
- 21. ágúst kl. 18
Þór/KA - Valur