Besta deildin: Útileikur gegn Þrótti á morgun

Úr vörn í sókn í fyrri leik liðanna 22. júní. Frá vinstri: Rósey Björgvinsdóttir, Allie Augur, Bríet…
Úr vörn í sókn í fyrri leik liðanna 22. júní. Frá vinstri: Rósey Björgvinsdóttir, Allie Augur, Bríet Jóhannsdóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, Emelía Ósk Krüger, Karen Hulda Hrafnsdóttir og Margrét Árnadóttir. Mynd: Ármann Hinrik.

- - -

Þór/KA sækir Þrótt heim í 18. umferð Bestu deildarinnar á morgun, næstsíðustu umferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar. Leikurinn hefst kl. 14. 

Samkeppnin um stig og sæti jafnaðist heldur betur í 17. umferðinni þegar tvö neðstu liðin, Valur og Víkingur, unnu bæði sína leiki. Enn eru sex stig í pottinum og ýmislegt sem getur gerst, hvert einasta stig dýrmætt fyrir tvískiptinguna og svo auðvitað eftir hana þar sem mismörg stig eru í boði eftir því hvort lið lendir fyrir ofan eða neðan strik við skiptinguna.

Breiðablik, FH og Stjarnan eru örugg með sæti í efri hlutanum og ÍBV mjög nálægt því að tryggja sér sæti þar. Af neðri liðunum er það einungis Víkingur sem getur ekki fært sig upp í eitt af sex efstu sætunum, en hin geta lent hvoru megin sem er. 

Baráttan um sætin

  • 5. Grindavík/Njarðvík
    22 stig
    -2 í markamun
    Leikir eftir: Víkingur (ú), Valur (h)
  • 6. Þróttur
    21 stig
    -3 í markamun
    Leikir eftir: Þór/KA (h), Breiðablik (h)
  • 7. Þór/KA
    18 stig
    -3 í markamun
    Leikir eftir: Þróttur (ú), FH (ú)
  • 8. Valur
    16 stig
    -12 í markamun
    Leikir eftir: FH (h), Grindavík/Njarðvík (ú)
  • 9. Fram
    16 stig
    -17 í markamun
    Leikir eftir: Stjarnan (h), ÍBV (ú)
  • 10. Víkingur
    14 stig
    -15 í markamun
    Leikir eftir: Grindavík/Njarðvík (h), Stjarnan (ú)

 

Leikir 18. umferðar

Allir leikir 18. umferðarinnar fara fram á morgun, laugardaginn 29. ágúst.

  • 14:00: Fram - Stjarnan
  • 14:00: Víkingur - Grindavík/Njarðvík
  • 14:00: Breiðablik - ÍBV
  • 16:00: Þróttur - Þór/KA
  • 16:00: Valur - FH

Leikir 10. umferðar

Lokaumferð deildarinnar fyrir tvískiptingu fer fram 5.-7. september, en í raun er þetta 10. umferð mótsins sem var færð aftur fyrir 18. umferðina. Athygli vekur að í þessari lokaumferð eru ekki öll liðin að spila á sama tíma, lið sem berjast um sæti í efri hlutanum eru með mismunandi leikdaga í þessari umferð.

  • 05.09.: ÍBV - Fram
  • 06.09.: FH - Þór/KA
  • 06.09.: Grindavík/Njarðvík - Valur
  • 07.09.: Stjarnan - Víkingur
  • 07.09.: Þróttur - Breiðablik