Karfan er tóm.
Eftir stutt landsleikjahlé er aftur komið að leik í Bestu deildinni. Þór/KA sækir Þrótt heim á AVIS-völlinn í Laugardal og hefst leikurinn kl. 17.
Þróttur er á toppi Bestu deildarinnar eftir sjö umferðir með 19 stig, en Þór/KA í 4. sætinu með 15 stig. Þróttur er eina liðið í deildinni sem ekki hefur tapað leik það sem af er móti, hefur unnið sex leiki af sjö, en gerði jafntefli við Breiðablik. Síðasti leikur Þórs/KA var 1-0 heimasigur gegn Stjörnunni, en Þróttur lék síðast útileik gegn FHL og vann hann 4-0. Þór/KA hefur nú unnið þrjá leiki í röð í deildinni, gegn Stjörnunni, Fram og FHL, en Þróttur er með fimm sigra í röð, gegn FHL, FH, Val, Tindastóli og Víkingi.
Það má því búast við skemmtilegum leik í dag og ástæða til að hvetja Akureyringa og annað stuðningsfólk Þórs/KA til að mæta í Laugardalinn og hvetja okkar stelpur til sigurs. Vakin er athygli á því að frítt er á leikinn í dag.