Afmælisbarn dagsins, Amalía Árnadóttir, í leiknum gegn Fram 7. ágúst. Mynd: Ármann Hinrik.
Þór/KA sækir Víking heim í 16. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Flautað til leiks í Víkinni kl. 18.
Enn er baráttan í neðri hluta deildarinnar jöfn og spennandi, átta stiga munur á liðunum í 5. og 10. sæti deildarinnar.
FH og Breiðablik eru jöfn á toppnum, bæði með 33 stig úr 14 leikjum, en þessi lið mætast á morgun, leikur í 15. umferð mótsins. ÍBV er með 24 stig í 3. sætinu og Stjarnan með 23 stig í 4. sætinu. Litlu munar í stigafjölda á liðunum þar fyrir neðan.
- 5. Grindavík/Njarðvík
19 stig
-6 í markamun
Leikir eftir: Fram (h), Víkingur (ú), Valur (h)
- 6. Þróttur
18 stig
-4 í markamun
Leikir eftir: ÍBV (ú), Þór/KA (h), Breiðablik (h)
- 7. Fram
16 stig
-13 í markamun
Leikir eftir: Grindavík/Njarðvík (ú), Stjarnan (h), ÍBV (ú)
- 8. Þór/KA (14 leikir)
15 stig
-5 í markamun
Leikir eftir: Víkingur (ú), Valur (h), Þróttur (ú), FH (ú)
- 9. Valur
13 stig
-13 í markamun
Leikir eftir: Þór/KA (ú), FH (h), Grindavík/Njarðvík (ú)
- 10. Víkingur (14 leikir)
11 stig
-13 í markamun
Leikir eftir: Þór/KA (h), FH (ú), Grindavík/Njarðvík (h), Stjarnan (ú)
Leikir 16. umferðar
Fjórum leikjum af fimm í 16. umferðinni er nú þegar lokið, aðeins leikur okkar liðs gegn Víkingi sem er eftir. Einn leikur úr 15. umferð mótsins, viðureign Breiðabliks og FH, verður á morgun, en Breiðablik var erlendis í Evrópuleikjum þegar 15. umferðin var spiluð.
- Þróttur - Valur 3-2
- Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0
- Fram - FH 4-6
- ÍBV - Stjarnan 3-2
- Víkingur - Þór/KA