Besta deildin: Við byrjum á morgun!

Keppni í Bestu deild kvenna hefst í kvöld, en okkar lið hefur leik á morgun kl. 16 þegar við tökum á móti FH á glænýjum gervigrasvelli sem tekinn var formlega í notkun á fyrsta sumardag. Upplýsingar um aðkomu og annað í sambandi við nýju stúkuna og völlinn verða birt hér á vefnum síðar í dag.

Leikmannahópurinn verður kynntur með ýmsu móti á samfélagsmiðlum félagsins á næstu dögum, en ástæða er til að vekja sérstaka athygli á TikTok-reikningnum þar sem stelpurnar okkar hafa brugðið á leik, bæði fyrir leiki, í æfingaferðum og í daglegu amstri. Þessa dagana gengur aðgangurinn á milli og leikmenn lýsa því sem gerist á venjulegum degi. 

  • Hópurinn 2026 - myndir, nöfn og tenglar á vef KSÍ
  • Þjálfari: Aðalsteinn Jóhann Friðriksson
    Kom til okkar frá Völsungi á Húsavík þar sem hann þjálfaði bæði meistaraflokkslið Völsungs
  • Aðstoðarþjálfari: Jóhann Hreiðarsson
  • Markvarðaþjálfari: Aron Birkir Stefánsson
  • Sjúkraþjálfari: Iðunn Elfa Bolladóttir
  • Sjúkraþjálfari: Hannes Bjarni Hannesson

Lista og myndir af leikmannahópnum má einnig finna í valmyndinni undir Félagið og Knattspyrnukonur.

Helstu upplýsingasíður

Gera má ráð fyrir breytingum á leikjadagskrá liðsins (og annarra liða) í kringum þátttöku U19 landsliðsins í lokamóti EM sem fram fer í Bosníu-Herzegovínu 28. júní til 10. júlí.

Breytingar á hópnum

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum, eins og gengur og gerist á milli ára. 

  • Komnar
    Arna Sif Ásgrímsdóttir - frá Val
    Halla Bríet Kristjánsdóttir - frá Völsungi
    Elísa Bríet Björnsdóttir - frá Tindastóli
    Birgitta Rún Finnbogadóttir - frá Tindastóli
    María Dögg Jóhannesdóttir - frá Tindastóli
    Erin Flurey - frá Bandaríkjunum
    Allie Augur - frá Bandaríkjunum
    Aníta Ingvarsdóttir - frá Dalvík*
    Karen Hulda Hrafnsdóttir - frá Dalvík*
    *Þær Aníta og Karen Hulda koma úr yngri flokkum félaganna og hafa spilað með yngri liðum Þórs/KA, en báðar skiptur þær í Dalvík fyrir síðasta tímabil og spiluðu einnig með Dalvíkurliðinu í 2. deild.
  • Farnar
    Ellie Moreno til Bandaríkjanna
    Eva Rut Ásþórsdóttir > Fylkir
    Henríetta Ágústsdóttir > Stjarnan (úr láni) > HK
    Jesssica Berlin til Bandaríkjanna
    Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir > Valur
    Krista Dís Kristinsdóttir > Fram
    Sandra María Jessen > 1. FC Köln
    Sonja Björg Sigurðardóttir > Valur
    Steingerður Snorradóttir