Bikarúrslitaleikur í 3. flokki

 

Þór/KA mætir Breiðabliki/Augnabliki í úrslitaleik bikarkeppni 3. flokks kvenna á Þórsvellinum sunnudaginn 11. september kl. 12.

Þór/KA vann lið Austurlands, 6-0, í 16 liða úrslitum keppninnar, síðan 3-0 sigur á Haukum/KA í átta liða úrslitum og 2-1 sigur á FH/ÍH í undanúrslitum. Breiðablik/Augnablik lagði RKVN, Víking og Gróttu/KR á leið sinni í úrslitaleikinn.

Dregið var um hvort liðið fengi heimaleik og varð Þórsvöllurinn ofan á í hlutkestinu. Leikurinn verður sunnudaginn 11. september og hefst kl. 15 eins og áður sagði - frítt inn.

Leiknum verður streymt á Þór TV, frítt, að sjálfsögðu - smella hér til að horfa - en við hvetjum Akureyringa til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar, frekar en að sitja við tölvuna og fylgjast með heima í stofu.

Streymi á Þór TV: