Bríet Fjóla Bjarnadóttir gengur til liðs við Þrótt

Bríet Fjóla Bjarnadóttir í leik með Þór/KA fyrr í sumar. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -
Bríet Fjóla Bjarnadóttir í leik með Þór/KA fyrr í sumar. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -

Stjórn Þórs/KA og knattspyrnudeildar Þróttar hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Bríetar Fjólu Bjarnadóttur í Þrótt og taka þau gildi þegar í stað. Samningur Bríetar Fjólu við Þór/KA gilti út yfirstandandi tímabil en samkomulag varð milli félaganna, leikmannsins og forráðamanna að hún skipti strax yfir til Þróttar.

Bríet Fjóla er eins og knattspyrnuáhugafólk veit gjörla ein af efnilegustu knattspyrnukonum landsins, fædd 2010 og hefur nú þegar verið í meistaraflokkshópi Þórs/KA í þrjú og hálft tímabil.

Bríet Fjóla á að baki 57 meistaraflokksleiki með Þór/KA, þar af 38 í Bestu deildinni. Hún kom fyrst við sögu í meistaraflokki haustið 2023 þegar hún kom inn af varamannabekknum í 3-2 sigurleik gegn Breiðabliki 13. september, leik sem jafnframt var minningarleikur um afa hennar, Guðmund Sigurbjörnsson, fyrrverandi formann Þórs.  Þá á hún að baki 15 landsleiki með U16, U17 og U18 landsliðum Íslands.

Stjórn Þórs/KA þakkar Bríeti Fjólu fyrir hennar framlag til félagsins og óskar henni góðs gengis á nýjum vettvangi.