Bríet Fjóla skoraði tvö með U16 landsliðinu

Byrjunarlið Íslands í 6-0 sigrinum á Eistlandi í öðrum leik liðsins í UEFA þróunarmótinu í Eistlandi…
Byrjunarlið Íslands í 6-0 sigrinum á Eistlandi í öðrum leik liðsins í UEFA þróunarmótinu í Eistlandi. Bríet Fjóla Bjarnadóttir er nr. 20. Myndin er fengin af Faceboook-síðu Knattspyrnusambands Íslands.

Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði tvö mörk í sigri Íslands á Eistlandi á UEFA þróunarmóti sem fram fer í Eistlandi. Fyrra markið kom eftir 75 sekúndna leik.

Leikurinn í gær var annar leikur liðsins í mótinu, en Bríet Fjóla var varamaður í þeim fyrri og spilaði síðustu 12 mínúturnar í 3-0 sigri gegn Slóvakíu á þriðjudag enda hafði hún verið í byrjunarliði Þórs/KA gegn Val tveimur dögum áður. 

Eistlendingar byrjuðu með boltann, en strax á 2. mínútu, eða um 75 sekúndum eftir að flautað var til leiks, hafði Bríet Fjóla skorað fyrsta mark Íslands. Hún fékk þá sendingu yfir varnarmann Eistlendinga hægra meginn, spilaði sjálf inn í teiginn og átti fallegt skot í hliðarnetið fjær. Bríet Fjóla var aftur á ferðinni upp við mark Eistlendinga á 29. mínútu þegar hún ýtti boltanum yfir línuna eftir að markvörður Eistlendinga hafði varið tvisvar frá leikmönnum Íslands. Staðan þá orðin 3-0. Íslenska liðið bætti við einu marki fyrir leikhlé og tveimur í seinni hálfleik - og Bríet Fjóla ekki langt frá því að klára þrennuna. Lokatölur urðu 6-0.

Ísland er því í efsta sæti mótsins með sex stig eftir tvo leiki og mætir liði Kósóvó sunnudaginn 4. maí.

Leikurinn var í beinu streymi á YouTube-rás Knattspyrnusambands Eistlands. Hér má sjá fyrra mark Bríetar Fjólu ásamt aðdragandanum.

Hér má sjá annað mark Bríetar Fjólu og þriðja mark Íslands:

Hér má sjá öll mörkin tekin saman ásamt fleiri atvikum úr leiknum: