Bríet og Emelía Ósk undirrita nýja samninga

Bríet Jóhannsdóttir og Emelí Ósk Krüger að loknum sigurleik gegn Grindavík/Njarðvík fyrr í mánuðinum…
Bríet Jóhannsdóttir og Emelí Ósk Krüger að loknum sigurleik gegn Grindavík/Njarðvík fyrr í mánuðinum. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -

Bríet Jóhannsdóttir og Emelía Ósk Krüger skrifuðu í gær undir nýja samninga við Þór/KA. Samningarnir gilda út keppnistímabilið 2028. 

Fyrri samningar beggja giltu út yfirstandandi tímabil og hafa þær því framlengt veru sína hjá Þór/KA um tvö ár. Þátttaka þeirra með liðinu verður þó með öðru og minna sniði en áður því báðar hafa þær spilað sinn síðasta leik fyrir Þór/KA í bili. Þær Bríet og Emelía Ósk eru á leið vestur um haf í háskólanám í Tennessee Tech University í Cookeville, sem ber bær með um 35.000 íbúa og er rúmum 100 kílómterum austur af Nashville.

Bríet Jóhannsdóttir (2006) hefur spilað 92 leiki fyrir Þór/KA í Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum og Lengjubikarnum. Þar af eru 64 leikir í Bestu deildinni þar sem hún hefur skorað fimm mörk. Tvö af þessum fimm mörkum komu í síðustu tveimur leikjum liðsins, gegn Stjörnunni og ÍBV. Þá á hún að baki fjóra landsleiki með U19 landsliði Íslands. Bríet hefur lengst af verið í stöðu bakvarðar í meistaraflokki, en hefur einnig spilað sem kantmaður og skoraði einmitt tvö síðustu mörkin spilandi í þeirri stöðu. Bríet kom fyrst við sögu í leikjum með Þór/KA í Lengjubikarnum og Bestu deildinni 2023. Hún hefur komið við sögu í 12 leikjum í Bestu deildinni það sem af er tímabilinu og skorað tvö mörk.

Bríet Jóhannsdóttir í leiknum gegn ÍBV í gær. Mynd: Ármann Hinrik.

Emelía Ósk Krüger (2006) hefur spilað 62 leiki með Þór/KA í Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum og Lengjubikarnum, og fjóra leiki með Völsungi í 2. deild á lánssamningi frá Þór/KA. Af leikjunum 62 eru 43 í Bestu deildinni og hefur hún skorað þrjú mörk í þeim leikjum, nú síðast í heimaleik gegn Víkingi í lok maí. Emelía Ósk hefur spilað á miðjunni og kom fyrst við sögu með meistaraflokki Þórs/KA í Lengjubikar, Bestu deildinni og Mjólkurbikarnum 2023. Hún hefur komið við sögu í átta leikjum í Bestu deildinni það sem af er tímabilinu og skorað eitt mark, eins og áður er getið.

Emelía Ósk Krüger í leiknum gegn ÍBV í gær. Mynd: Ármann Hinrik.