Bryndís Eiríksdóttir til liðs við Þór/KA

Þór/KA hefur samið við Bryndísi Eiríksdóttur (2005) og knattspyrnudeild Vals um að Bryndís leiki með Þór/KA í sumar á lánssamningi frá Val. Bryndís æfði með Þór/KA um liðna helgi og tók þátt í æfingaleik með liðinu gegn Völsungi. Í framhaldi varð úr að hún kæmi norður og spilaði með Þór/KA í sumar.

Bryndís er yngri systir Örnu sem kom til félagsins, einnig á láni frá Val, sumarið 2022. Þær systur eru ekki alveg ókunnar Norðurlandinu enda ættaðar frá Húsavík í föðurætt, en móðir þeirra, Guðrún Sæmundsdóttir, lék með Val og var á meðal fremstu knattspyrnukvenna landsins á sínum tíma.

Bryndís lék með yngri flokkum Víkings, en hefur verið samningsbundin Val frá árinu 2022. Hún á að baki leiki með KH í 2. deild og HK í Lengjudeildinni á lánssamningi frá Val, auk leikja með Val í Lengjubikar, en hefur ekki komið við sögu í leikjum í Bestu deildinni.

Velkomin í Þór/KA-fjölskylduna, Bryndís!