Búið að draga í happdrættinu - vinningaskrá

Dregið hefur verið í happdrætti meistaraflokks Þórs/KA. Hér að neðan má sjá vinningsnúmerin.

Athugið að vinningar verða afhentir í komandi viku. Eigendur vinningsmiða þurfa ekki að vitja vinninganna því stelpurnar í meistaraflokki og aðrir sem seldu miðana sjá um að koma vinningum til þeirra sem keyptu af þeim vinningsmiðana. Stefnt er að því að allir vinningshafar verði komnir með sína vinninga í hendurnar fyrir páska.

Fyrsti vinningur kom á miða númer 805.

Dregin voru út 37 númer af handahófi, en upphaflega vinningaskráin gerði ráð fyrir 35 vinningum. Eftir að hún var gefin út bárust fleiri vinningar og var því bætt við tveimur númerum.

Bestu þakkir til ykkar allra fyrir stuðninginn.