Elísa Bríet Björnsdóttir gengur til liðs við Þór/KA

Stjórn Þórs/KA hefur samið við  Elísu Bríeti Björnsdóttur (2008) um að leika með liðinu næstu þrjú árin. Elísa Bríet kemur til félagsins frá Tindastóli þar sem hún hefur, þrátt fyrir ungan aldur, verið undanfarin fjögur ár og ein af lykilleikmönnum liðsins undanfarin tvö ár.

Elísa Bríet er ein af efnilegustu knattspyrnukonum landsins. Hún hefur nú þegar sannað sig sem leikmaður í efstu deild hér á landi og hefur öðlast mikla reynslu á þeim vettvangi þrátt fyrir ungan aldur. Elísa Bríet er miðvallarleikmaður með góðan leikskilning, marksækin og með frábæra spyrnutækni, ásamt fleiri kostum sem hún hefur til að bera sem gera hana að áhugaveðri og spennandi leikmanni.

Elísa Bríet kom fyrst við sögu í meistaraflokki með Tindastóli í ársbyrjun 2022, en spilaði fyrst í Bestu deildinni sumarið 2023. Hún er Skagstrendingur, en lék með yngri flokkum Kormáks á Hvammstanga áður en hún skipti í Tindastól 14 ára að aldri. Hún á að baki 65 leiki og 16 mörk í meistaraflokki með Tindastóli í deild, bikar og deildabikar, þar af eru 51 leikur og 13 mörk í efstu deild. Elísa Bríet hefur spilað 22 leiki með yngri landsliðum Íslands, U19, U18, U17 og U16. Hún spilaði 20 leiki fyrir Tindastól í Bestu deildinni í fyrra og skoraði sjö mörk.

Elísa Bríet Björnsdóttir í leik með Tindastóli gegn Þór/KA í Boganum síðastliðið haust. Mynd: Ármann Hinrik.

Elísa Bríet var kjörin íþróttakona Ungmennasambands Austur-Húnavatnssýslu árið 2024 og var í öðru sæti í kjörinu fyrir árið 2025.

Stjórn Þórs/KA fagnar komu þessa efnilega og spennandi leikmanns í okkar raðir og býður Elísu Bríet velkomna í okkar öfluga hóp. Félagið væntir mikils af henni í framtíðinni og verður spennandi að fylgjast með framgöngu hennar á nýjum vettvangi.