Elísa Bríet Björnsdóttir með U19 á lokamóti EM

Elísa Bríet Björnsdóttir er okkar fulltrúi með U19 landsliðinu í lokamóti EM sem fram fer næstu daga…
Elísa Bríet Björnsdóttir er okkar fulltrúi með U19 landsliðinu í lokamóti EM sem fram fer næstu daga. Innfellda myndinn er af vef KSÍ og er af hópnum á æfingu á Laugardalsvelli.
- - -

U19 landsliðið tryggði sér í vor sæti í lokamóti EM sem fram fer í Bosníu-Herzegovínu næstu daga. Í þeim hópi er Elísa Bríet Björnsdóttir frá Þór/KA. Fyrsti leikur liðsins er á sunnudag.

Íslenska liðið leikur tvo fyrstu leiki sína í Zenica, borg sem er um 70 km norðvestur af höfuðborginni Sarajevó, en síðasti leikur liðsins fer fram í Sarajevó. Átta lið spila í tveimur riðlum í lokamótinu og fara sigurlið riðlanna í úrslitaleik. Ísland er í riðli með Austurríki, Spáni og Sviss.

  • A-riðill: Bosnía og Herzegóvína, Þýskaland, Svíþjóð og Pólland.
  • B-riðill: Ísland, Austurríki, Spánn og Sviss.

Leikir liðsins verða í beinu streymi á vef UEFA og þar má nálgast allar upplýsingar um mótið - sjá hér. Upplýsingar um íslenska liðið - sjá hér.

Leikir Íslands

Hægt er að smella á hvern leik fyrir sig og skoða upplýsingar um leikinn á vef UEFA.

Leikirnir í riðlunum: