Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir með U15

U15 landslið Íslands sigraði Portúgal í æfingaleik í gær. Liðin mætast aftur á morgun.

Þór/KA á einn fulltrúa með U15 landsliðinu sem nú er statt í Portúgal þar sem liðið spilar tvo æfingaleiki við U15 landslið Portúgals. 

Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir spilaði allan leikinn í 3-0 sigri liðsins í fyrri æfingaleiknum sem fram fór í gær. Seinni leikurinn verður á morgun, fimmtudag, og hefst kl. 14.

Leikskýrslan á vef KSÍ.