Karfan er tóm.
Knattspyrna er leikur án fordóma. Heiðarleg framkoma utan vallar sem innan leiðir af sér betri og skemmtilegri knattspyrnu. Við hvetjum okkar lið með jákvæðum og uppbyggilegum hætti og berum virðingu fyrir öllum þátttakendum leiksins.
Þannig hljómar texti sem vallarþulum landsins er ætlað að fara með og minna stuðningsmenn á fyrir alla leiki.
Það er ekki öfundsvert starf að vera dómari. Oftast hljóta þau sem sinna þessum þætti leiksins vanþakklæti að launum, jafnvel eitthvað enn verra. En auðvitað væru engir leikir án dómara. Fyrir störf þeirra ber því að þakka um leið og við hvetjum fólk og félög til að leggja meiri áherslu á að í starfinu verði til upprennandi dómarar sem mögulega geta átt áratuga framtíð í áhugaverðu starfi sem býður upp á fjölbreytni og ferðalög. Munum að þakka fyrir þennan hluta íþróttarinnar sem við elskum.
Ármann Hinrik mætti á nánast alla heimaleikina okkar á árinu og beindi linsunni reglulega að þessum hluta leiksins, dómurunum. Nokkur af myndasöfnum sumarsins má finna hér á vefsíðunni - sjá hér.
Takk fyrir okkur!